Innlendar fréttir

10.3.2010  Sigurður Már Harðarson
Ullarþvottastöðin í Hveragerði horfin
Það er hálf eyðilegt um að litast við Dynskóga í Hveragerði þar sem áður stóð ullarþvottastöð Ístex en nú er búið að jafna húsið við jörðu og eftir stendur steypt grunnplatan og grús á víð og dreif. Árið 2004 var ullarþvotti hætt í húsinu sem hefur undanfarið verið nýtt sem tjaldvagnageymsla.

Húsið var byggt sem Ullarþvottastöð Sambandsins sem tók til starfa þann 20. febrúar árið 1964. Eftir að ullarþvotti var hætt í húsinu skipti það um eigendur og voru uppi hugmyndir um að byggja fjölbýlishús á lóðinni eða nýta það sem steypueiningaverksmiðju. Þær hugmyndir gengu þó ekki eftir og keypti bæjarstjórn Hveragerðisbæjar húsið árið 2007 með það fyrir augum að rífa það. Í jarðskjálftanum sem reið yfir þann 29. maí árið 2008 skemmdist húsið mikið og var í framhaldinu ákveðið að rífa það.

Sjá í Bændablaðinu á morgun.

Munu dómar Hæstaréttar um gengistryggðu lánin hafa afgerandi áhrif á þína fjárhagsstöðu?
Já, ef farið verður eftir þeim.
Held að of mikil óvissa sé enn í málinu til að hægt sé að segja til um það.
Nei, þeir hafa ekki teljandi áhrif.
 
Svara

Skoða niðurstöður