Í helli einum í Afríku hafa fundist leifar af korni sem eru taldar vera 105 þúsund ára gamlar. Hefur þessi fundur umbylt skilningi okkar á nýtingu mannfólks á korni, en hingað til hafa sérfræðingar álitið að korn hafi verið nýtt í rúm 10 þúsund ár. Sænska bændablaðinu ATL greinir frá niðurstöðum kanadískrar rannsóknar sem leiðir þetta í ljós og birt var opinberlega í tímaritinu Science.
Leifarnar fundust á steináhaldi í helli í Mósambík þar sem búseta manna er talin hafa verið óslitin í 60 þúsund ár. Þær eru af korntegundinni dúrru (Sorghum vulgare) sem mun vera ræktuð til manneldis, einkum í N-Afríku, N-Ameríku og Japan.