Erlendar fréttir

8.1.2010  Þröstur Haraldsson
Vetarhörkur ógna fé í Skotlandi

Mikið vetrarríki hefur valdið bændum á Bretlandseyjum ýmsum búsifjum. Nokkur brögð hafa verið að því að bændur hafi orðið að hella niður mjólk vegna þess að mjólkurbílar komust ekki til að sækja til þeirra mjólkina vegna ófærðar. Samtök lífrænna bænda greindu frá því að allt að 100.000 lítrum hefði verið hellt á tveimur sólarhringum af þessari ástæðu og ástandið fer ekki batnandi því veðurspáin gerir ráð fyrir áframhaldandi kulda og ofankomu um helgina.

Í Skotlandi óttast margir bændur um sauðfé sitt sem víða gengur úti á fjöllum uppi allan ársins hring. Talið er að um það bil ein milljón fjár gangi úti yfir veturinn í skosku hálöndunum og glímir það fé nú við mikið fannfergi en víða er snjódýpt yfir metra að þykkt. Fannfergið veldur því einnig að bændur eiga erfitt með að nálgast féð, hvort sem er til að færa því fóður eða smala því saman og reka til byggða.

Vetrarhörkurnar hafa staðið óvenju lengi en sumar hjarðirnar hafa verið einangraðar frá því um miðjan desember. Eins og áður sagði eru ekki horfur á að það breytist alveg á næstunni svo bændasamtök hafa lýst yfir áhyggjum af ástandinu. Fannfergið hefur einnig valdið skemmdum á útihúsum, þök hafa brostið undan snjóþunga og í stöku tilvikum hafa skepnur drepist og vélakostur eyðilagst.

The Guardian sagði frá.

 
  


 


 

Munu dómar Hæstaréttar um gengistryggðu lánin hafa afgerandi áhrif á þína fjárhagsstöðu?
Já, ef farið verður eftir þeim.
Held að of mikil óvissa sé enn í málinu til að hægt sé að segja til um það.
Nei, þeir hafa ekki teljandi áhrif.
 
Svara

Skoða niðurstöður