Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Á Hvanneyrarengjum.
Á Hvanneyrarengjum.
Fréttir 27. september 2018

Áhersla á að auka afurðasemi á hagkvæman hátt og að bæta fóðurnýtingu

Höfundur: BHB
Aðalfundur Hvanneyrarbúsins ehf. var haldinn þann 29. ágúst sl. Í stjórn félagsins eru Baldur Helgi Benjamínsson búfjár­erfðafræðingur en hann tók við stjórnarformennsku af Þóroddi Sveinssyni lektor í apríl síðast­liðnum.
 
Ólöf Ósk Guðmundsdóttir, námsbrautarstjóri Búfræðibrautar, kom þá einnig í stjórn í stað Auðar Magnúsdóttur sem hefur látið af störfum hjá Landbúnaðar­háskólanum. Auk þeirra sem þegar eru taldir situr Pétur Diðriksson, bóndi á Helgavatni í Þverárhlíð, í stjórn félagsins. Bústjóri er Egill Gunnarsson og fjósameistari er Hafþór Finnbogason. Hafsteinn Ingi Gunnarsson er sumarstarfsmaður og sér um afleysingar á búinu. Félagið er í eigu Landbúnaðarháskólans og fer rektor með atkvæðisrétt í því. Fundargerðir og ársreikningur félagsins eru birtar á heimasíðu Landbúnaðar­háskólans, lbhi.is. 
 
Stjórn og bústjóri Hvanneyrarbúsins ehf., ásamt Sæmundi Sveinssyni rektor og Theodóru Ragnarsdóttur rekstrarstjóra og Þóroddi Sveinssyni, lektor og fyrrverandi stjórnarformanni félagsins, á aðalfundi þess 2018.
 
Eitt afurðahæsta bú landsins
 
Tilgangur félagsins er að reka á hagkvæman hátt kúabú á Hvanneyri í þágu kennslu og rannsóknastarfs Landbúnaðarháskóla Íslands. Innlögð mjólk árið 2017 var 540.994 lítrar með 3,85% fitu og 3,18% próteini, mfm líftölu var 19 og mfm frumutölu 169. 
 
Árskýr á búinu voru 73,1 sem að meðaltali skiluðu 8.180 kg mjólkur, með 3,79% fitu og 3,23% próteini. Undanfarin ár hefur verið lögð rík áhersla á að auka afurðasemi með hagkvæmum hætti og bæta fóðurnýtingu. Árið 2017 var kjarnfóðurnotkun 284 g pr. innlagðan lítra mjólkur, árið áður var notkunin 310 g pr. innlagðan lítra. Tún, engjar og grænfóðurakrar búsins eru um 170 ha.
 
 
Hagnaður 3,1 m.kr. árið 2017
 
Rekstur félagsins gekk vel á árinu 2017 og var í samræmi við áætlanir sem stjórnendur þess lögðu upp með. Heildartekjur félagsins voru 83,7 m.kr. og jukust lítillega frá fyrra ári og hagnaður þess var 3,1 m.kr. 
 
Áætlun þessa árs gerir ráð fyrir áframhaldandi góðu jafnvægi í rekstri félagsins og auknum fjárhagslegum styrk þess. Eigið fé félagsins jókst talsvert á árinu og var það 21,2 m.kr. í árslok 2017. Frá því að rekstur félagsins var færður í núverandi horf árið 2015 hefur afkoma og eiginfjárstaða þess þróast með jákvæðum hætti, eins og sjá má á myndunum hér að neðan.
 
 
Talsverð endurnýjun og viðhald
 
Félagið lagði í talsverðar fjár­fest­ingar á árinu, aðal­dráttarvél búsins var endurnýjuð og önnur notuð dráttarvél var keypt, ásamt afrúllara og ýmsum öðrum tækjum, notuðum og nýjum. Áfram var unnið af krafti í jarðabótum og endurræktun Hvann­eyrar­jarðarinnar. Á undan­förnum tveimur árum hefur verið hreinsað upp úr 6,1 km af skurðum, 14,5 ha hafa verið kýfðir og annað eins verið kílplægt. Legubásamottur í fjósi hafa verið endurnýjaðar. Félagið uppfyllir áfram skilyrði Auðhumlu svf. um Fyrirmyndarbú. 
 
Á fagþingi nautgriparæktarinnar sem haldið var sl. vor, veitti fagráð í nautgriparækt Hvanneyrarbúinu ehf viðurkenningu fyrir besta kynbótanautið í árgangi 2010. Var það nautið Úranus 10081, sem fæddur var á Hvanneyri 21. nóvember 2010, undan Urði 1229, Laskadóttur og Síríus 02032.
 
Nýr mykjutankur reistur
 
Á árinu 2017 var hafinn undir­búningur að endurnýjun á mykju­geymslu við fjósið á Hvann­eyri og var nýr 2.300 rúmmetra mykjutankur reistur þann 4. september sl. Landbúnaðarháskólinn greiðir stofnkostnað við tankinn og er tilkoma hans mikið framfaraskref í umhverfismálum sem stuðlar að betri nýtingu næringarefna, bættri vinnuaðstöðu starfsmanna og jákvæðri ásýnd búsins. 
 
Stjórnin vill þakka starfsmönnum félagsins og skólans samstarfið á árinu og óska þeim til hamingju með góðan árangur í rekstri búsins. Jafnframt er fráfarandi stjórnarmönnum þökkuð góð og ötul störf í þágu félagsins.
 
Meindýraeyðir Hvanneyrarbúsins, fjóskötturinn Rjómi.

5 myndir:

Skylt efni: Hvanneyrarbúið

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni
Fréttir 18. apríl 2024

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni

Vegamót á Bíldudal er matvöruverslun og veitingastaður. Gísli Ægir Ágústsson, ve...

„Allt of fáar messur“
Fréttir 18. apríl 2024

„Allt of fáar messur“

Tryggvi Sveinn Eyjólfsson, sem er á sautjánda aldursári, hefur vakið athygli fyr...

Íslenskar sængur um allan heim
Fréttir 18. apríl 2024

Íslenskar sængur um allan heim

Íslenskur dúnn ehf. selur æðardúnsængur beint til viðskiptavina um heim allan. Þ...

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign
Fréttir 17. apríl 2024

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign

Kristín Lárusdóttir og Guðbrandur Magnússon, bændur að Syðri- Fljótum í Meðallan...

Breyttar reglur um flutning líflamba
Fréttir 17. apríl 2024

Breyttar reglur um flutning líflamba

Verklagsreglur hafa verið endurskoðaðar um flutning á lömbum með verndandi eða m...

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins
Fréttir 16. apríl 2024

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins

Á fagfundi sauðfjárræktarinnar sem haldinn var á dögunum var Gýgjarhólskot í Bis...

Verulegur samdráttur í innflutningi á áburði
Fréttir 16. apríl 2024

Verulegur samdráttur í innflutningi á áburði

Matvælastofnun hefur birt leiðrétta skýrslu yfir áburðareftirlit síðasta árs.

Ísteka í yfirburðastöðu
Fréttir 15. apríl 2024

Ísteka í yfirburðastöðu

Í nýrri ályktun Samkeppniseftirlitsins kemur fram að Ísteka beiti sterkri stöðu ...