Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Í verkefninu Unga fólkið og plast mun unglingastig Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri kynna verkefni sem þau hafa sérstaklega unnið fyrir BRIM kvikmyndahátíð. Verkefnið samanstendur af stuttmynd og miðlunartengdu efni um plastmengun sjávar.
Í verkefninu Unga fólkið og plast mun unglingastig Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri kynna verkefni sem þau hafa sérstaklega unnið fyrir BRIM kvikmyndahátíð. Verkefnið samanstendur af stuttmynd og miðlunartengdu efni um plastmengun sjávar.
Fréttir 16. september 2019

Um plastmengun og áhrif plasts á okkur og náttúruna

Höfundur: Hörður Kristjánsson
BRIM kvikmyndahátíð verður haldin á Eyrarbakka laugardaginn 28. september nk. Þar verða sýndar þrjár kvikmyndir sem fjalla um plast og afleiðingar þess á samfélög, náttúruna, hafið og á okkur sjálf. Stuttir og fróðlegir fyrirlestrar verða þar einnig sem fjalla um stöðuna á Íslandi.
 
BRIM kvikmyndahátíð ætlar sér að fræða og vekja athygli á einu stærsta og mest aðkallandi umhverfisvandamáli samtímans. Kvikmyndasýningar eru í Óðinshúsi á Eyrarbakka og eru þær opnar öllum. Á flesta viðburði er ekki þörf á að skrá sig fyrirfram, aðeins að mæta og njóta. Hins vegar þarf að skrá sig á myndirnar Plastic ocean og myndina Albatross. Hægt er að gera það á vefsíðunni brimkvikmyndahatid.is. Annars er ókeypis á allar sýningar og viðburði.
 
„Bag it“
 
Í myndinni „Bag it“ er  Bandaríkjamaðurinn Jeb Berrier hinn „venjulegi meðalmaður“ sem ákveður að skoða hvað verði um alla plastpokana sem við notum og spyr sig hvort þeir séu virkilega nauðsynlegir. Þessar vangaveltur leiða hann inn í heim plasts og það „ástarsamband“ sem við eigum við plast í okkar nútímasamfélagi. 
 
Jeb kemst að því að það er nánast allt í okkar nútímasamfélagi gert úr plasti og/eða inniheldur skaðleg plastefni. Barnavörur, íþróttavörur, efni í tannlækningum og hreinlætisvörur, svo eitthvað sé nefnt. En við getum brugðist við og það eru leiðir, á þær er einnig bent í þessari mynd. Þessi mynd er ekki með íslenskum texta. 
 
Plastic ocean
 
Kvikmyndin Plastic ocean er einstaklega áhrifamikil kvikmynd sem fjallar um hvað gerist þegar plast fer í hafið. Ferðast er um víða veröld ofan- og neðansjávar, rætt við fólk og fremstu vísindamenn og aðstæður skoðaðar. Skoðað er hvernig plast brotnar hratt niður í örplast og afleiðingar þess meðal annars með tilliti til þess þegar það fer í fæðukeðjuna og dregur að sér eiturefni eins og segull. Örplastið og eiturefnin enda svo á matborði okkar með ófyrirséðum afleiðingum. Mögnuð mynd sem óhætt er að mæla mjög með. Þessi mynd er með íslenskum texta og nauðsynlegt er að bóka sig fyrirfram. 
 
Albatross
 
Myndin Albatross er listræn og áhrifamikil mynd sem fjallar um fuglinn Stormfugl / Albatross á Midway eyju í Kyrrahafinu. Myndin er eftir listamanninn Chris Jordan sem fjallar á áhrifamikinn og sjónrænan hátt um Stormfugl og þau hörmulegu áhrif sem plast í hafinu hefur á fuglinn og lífsskilyrði hans. Þessi mynd er ekki með íslenskum texta. Myndin er fyrst og fremst list- og sjónræn upplifun og ættu flestir að geta notið myndarinnar óháð skilningi á ensku. Myndin er sýnd í grænu stofunni í Húsinu (Byggðasafni Árnesinga). Takmarkaður fjöldi kemst á sýninguna og því er nauðsynlegt að bóka sig fyrirfram á þessa sýningu. Ekkert kostar samt á þessa sýningu.
 
Unga fólkið og plast
 
Í verkefninu Unga fólkið og plast mun unglingastig Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri kynna verkefni sem þau hafa sérstaklega unnið fyrir BRIM kvikmyndahátíð. Verkefnið samanstendur af stuttmynd og miðlunartengdu efni um plastmengun sjávar. Verkefnið er unnið með samþættingu námsgreina, þ.e. náttúrufræði, ensku og upplýsingatækni.
 
Unglingastig Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri mun sýna stuttmyndir og annað miðlunartengt efni er varðar plastmengun sjávar. Verkefni nemenda verða unnin með samþættingu námsgreina, þ.e. náttúrufræði, ensku og upplýsingatækni. Verkefni nemenda eru hluti þeirra kvikmynda og fræðsluefnis sem sýnt verður á BRIM kvikmyndahátíð. Fangelsið á Litla-Hrauni tekur  þátt í verkefninu og verður kvikmyndasýning fyrir fanga hluti af hátíðinni. Litla-Hraun er eitt þeirra „heimila“ sem mun bjóða almenningi að koma og horfa á eina af myndum hátíðarinnar.  Að lokinni sýningu á Litla-Hrauni verður fræðsluerindi en þá mun einstaklingur frá fangelsinu segja frá því hvernig fangelsið vinnur að umhverfismálum.
 
Lausnamiðuð fræðsla
 
Fræðsluerindi verða í boði á hátíðinni og er ekki nauðsynlegt að skrá sig á þau. Markmiðið er að fræða um þann vanda sem plastnotkun og plastmengun er bæði á heimsvísu og í okkar nærumhverfi. Einnig er horft til lausna og verður sagt frá því starfi sem verið er að vinna á því sviði. 
Fyrsti umplöntunarróbóti landsins
Fréttir 19. apríl 2024

Fyrsti umplöntunarróbóti landsins

Í maí í fyrra var settur upp umplöntunarróbóti á gróðrarstöðinni Sólskógum í Kja...

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum
Fréttir 19. apríl 2024

Ólöglegur frágangur á dýrahræjum

Opinn gámur, yfirfullur af dýrahræjum, stóð á dögunum á steyptu bílastæði við in...

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni
Fréttir 18. apríl 2024

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni

Vegamót á Bíldudal er matvöruverslun og veitingastaður. Gísli Ægir Ágústsson, ve...

„Allt of fáar messur“
Fréttir 18. apríl 2024

„Allt of fáar messur“

Tryggvi Sveinn Eyjólfsson, sem er á sautjánda aldursári, hefur vakið athygli fyr...

Íslenskar sængur um allan heim
Fréttir 18. apríl 2024

Íslenskar sængur um allan heim

Íslenskur dúnn ehf. selur æðardúnsængur beint til viðskiptavina um heim allan. Þ...

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign
Fréttir 17. apríl 2024

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign

Kristín Lárusdóttir og Guðbrandur Magnússon, bændur að Syðri- Fljótum í Meðallan...

Breyttar reglur um flutning líflamba
Fréttir 17. apríl 2024

Breyttar reglur um flutning líflamba

Verklagsreglur hafa verið endurskoðaðar um flutning á lömbum með verndandi eða m...

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins
Fréttir 16. apríl 2024

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins

Á fagfundi sauðfjárræktarinnar sem haldinn var á dögunum var Gýgjarhólskot í Bis...