Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Útþynnt ólífuolía, úldið kjöt og aukaefni í fiski
Fréttir 9. maí 2018

Útþynnt ólífuolía, úldið kjöt og aukaefni í fiski

Höfundur: Vilmundur Hansen

Undanfarna mánuði hefur komið í ljós að þúsundir tonna af skemmdum matvælum og matvælum með röngum uppruna­­merkingum er að finna í verslunum í Evrópu og víðar um heim. Samstarfshópur Euro­pol og Interpol, sem kallast OPSON VI, vinnur að rannsókn matvælaglæpa.

Evrópulögreglan Europol, hefur undanfarna mánuði, í samvinnu við alþjóðalögregluna Interpol, unnið umfangsmiklar rannsóknir á glæpum sem tengjast framleiðslu, merkingum, dreifingu og sölu á matvælum um allan heim.

Í yfirlýsingu frá Europol segir að glæpastarfsemi sem tengist matvælum fari vaxandi í Evrópu og heiminum öllum. Þar segir einnig að vitað sé um nálega 50 skipulögð glæpasamtök sem sérhæfa sig í framleiðslu, dreifingu og sölu á sviknum mat- og drykkjarvörum með röngum upprunamerkingum.

Rannsókn í 67 löndum

Frá því í desember á síðasta ári hefur OPSON VI rannsakað mál í 67 löndum og lagt hönd á 9,8 þúsund tonn, 26,4 milljón lítra og 13 milljón eintök af matvörum og drykkjarföngum í verslunum, á mörkuðum, á flugvöllum, á veitingahúsum og hjá framleiðendum sem ekki standast lágmarkskröfur um gæði eða merkingar.

Mikið af handlögðu matvörunum eru taldar óhæfar og jafnvel hættulegar til neyslu.

Dæmi um svikavörur eru áfengi, vatn á flöskum, krydd, fiskur, ólífuolía og kavíar. Auk þess sem víða fannst kjöt í sölu sem var komið vel yfir síðasta leyfilega söludag og jafnvel farið að slá í og kjöt sem ekki var það sem það var sagt vera. Til dæmis hrossakjöt sem selt var sem nautakjöt.

Vel á áttunda hundrað manns hafa verið handteknir í tengslum við rannsóknina og verðgildi handlögðu matvælanna er áætlað 230 milljónir evra, sem jafngildir rúmlega 28 milljörðum í íslenskum krónum.

Neysla á sviknum matvælum hættuleg

Rannsókn OPSON VI staðfestir að glæpir sem tengjast svikinni mat- og drykkjarvöru séu til staðar á öllum sviðum matvælageirans. Hvort sem það er framleiðsla, merkingar, dreifing og sala og að glæpastarfsemi tengd mat- og drykkjavörum er stunduð um allan heim.

Françoise Dorcier, sérfræðingur hjá þeirri deild Interpol sem rannsakar vörusvik og heilbrigðismál, segir að rannsóknin sýni að skipulögð glæpasamtök hiki ekki við að selja svikna mat- og drykkjarvöru í ágóðaskyni án tillits til afleiðinganna og hvaða áhrif þær kunni að hafa á heilsu fólks.

Mikið magn af sviknum matvælum í umferð

Frjáls verslun með matvæli milli landa og minna tollaeftirlit gerir glæpasamtökunum auðveldara fyrir. Daoming Zhang, yfirmaður markaðsglæpa hjá Interpol, segir að magn svikinna matvæla og matvæla sem ekki standist gæðakröfur á markaði ætti að minna neytendur á að hafa varann á þegar kemur að innkaupum.

Endanleg skýrsla OPSON VI væntanleg í maí

Þrátt fyrir að endanleg skýrsla OPSON VI vegna rannsóknanna verði birt í maí má finna eftirfarandi dæmi um nýleg matvælasvik á heimasíðu Europol.

Litaður túnfiskur frá Noregi

Noregur er meðal þeirra landa sem hafa mátt þola rannsókn og beinist athyglin þar að auka- og litarefnum í túnfiski. Í mörgum sýnum reyndist magn þeirra efna langt yfir viðmiðunarmörkum.

Samkvæmt upplýsingum Europol er um fimm milljón túnfiskmáltíða neytt í viku hverri í Evrópu, eða um 25 þúsund tonn á ári. Talið er að svik sem tengjast sölu á túnfiski í álfunni jafngildi um 25 milljörðum íslenskra króna á ári.

Buffalóaostur úr kúamjólk í Danmörku

Dæmi um rangar merkingar er parmaskinka sem seld á veitinga­húsum í Danmörku sem ítölsk en er framleidd í Danmörku og buffalóaostur sem framleiddur er úr kúamjólk. Einnig kom í ljós að mikið af ólífuolíu á markaði í Danmörku er ranglega merkt sem jómfrúarolía en var það ekki. Við nánari skoðun kom í ljós að talsvert af ólífuolíunni var þynnt út með annars konar og ódýrari matarolíum.

Hnetusvik í Þýskalandi

Rannsókn í Þýskalandi sýndi að víða var ábótavant þegar kom að merkingu á innihaldi hvað hnetur varðar en slíkt getur verið hættulegt fyrir fólk með hnetuofnæmi. Einnig kom í ljós að mikið magn af ristuðum möluðum heslihnetum í sölu voru að stórum hluta jarðhnetur. 

Úldið kjöt í Belgíu

Í Belgíu var stórri kjötvinnslu lokað og matvöruverslanir þurftu að taka mikið magn af markaði eftir að í ljós kom að talsvert af þeim afurðum sem vinnslan sendi frá sér var hreinlega skemmt og jafnvel úldið.

Svikin komu í ljós við eftirlit heilbrigðisyfirvalda hjá kjötvinnslunni. Við eftirlit kom í ljós að uppsópuðu, skemmdu, jafnvel úldnu kjöti, sem ætlað var sem dýrafóður, var blandað í unnar kjötvörur til að drýgja þær.

Sviknir súputeningar í Frakklandi

Tollayfirvöld í Frakklandi lögðu hald á yfir 179 þúsund súputeninga sem búið var að pakka í sams konar umbúðir og frægt vörumerki notar. Fölsuðu súputeningarnir fundust í vöruhúsi í París þar sem þeir biðu þess að vera fluttir úr landi.

Sem stendur er verið að rannsaka fyrri sendingar frá fyrirtækinu sem framleiddi fölsuðu súputeningana og hvert þeir voru seldir.

300 þúsund dósir af túnfiski gerðar upptækar

Matvælaeftirlitið og lögregla í Portúgal kom upp um verksmiðju í Portúgal þar sem verið var að sjóða niður túnfisk og sardínur við aðstæður sem voru langt fyrir neðan öll heilbrigðisviðmið. Auk þess sem verksmiðjan hafði ekki leyfi til að vinna matvæli.

Við nánari rannsókn kom í ljós að verið var að sjóða niður sardínur sem höfðu verið soðnar niður áður og komnar vel umfram leyfilegan söludag og í sumum tilfellum skemmdar. Til að leyna skemmdunum voru sardínurnar soðnar niður í tómatlegi í seinna skiptið.

Vatn og vín á Ítalíu

Yfirvöld á Ítalíu hafa lagt hönd á ríflega 266 þúsund lítra af vatni í flösku. Rannsókn leiddi í ljós að kranavatni hafði verið tappað á sams konar flöskur og frægt vatnsölufyrirtæki notar og selt undir nafni þess. Aðilarnir sem töppuðu vatninu á flöskurnar höfðu ekki leyfi heilbrigðisyfirvalda til starfseminnar né stóðust kröfur þeirra.

Annað dæmi frá Ítalíu fól í sér að lággæða rauðvíni var tappað á flöskur með merkingu sem gæðavín frá þekktum vínræktarhéruðum. Svikna vínið var bæði selt á markaði á Ítalíu og flutt úr landi.

Skelfiskur á Spáni

Á Spáni var lagt hald á skelfisk sem var óhæfur til manneldis vegna slæmrar meðferðar og geymslu. Fyrirtækið sem seldi skelfiskinn upprunamerkti hann vísvitandi rangt.

Skemmt kjöt á Írlandi

Lögreglan á Írlandi handlagði meðan á rannsókninni stóð talsvert magn af kjöti sem hvorki var geymt við aðstæður sem stóðust heilbrigðiskröfur né kröfu um merkingar.

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni
Fréttir 18. apríl 2024

Verslunarrekstur í dreifbýli er samfélagsverkefni

Vegamót á Bíldudal er matvöruverslun og veitingastaður. Gísli Ægir Ágústsson, ve...

„Allt of fáar messur“
Fréttir 18. apríl 2024

„Allt of fáar messur“

Tryggvi Sveinn Eyjólfsson, sem er á sautjánda aldursári, hefur vakið athygli fyr...

Íslenskar sængur um allan heim
Fréttir 18. apríl 2024

Íslenskar sængur um allan heim

Íslenskur dúnn ehf. selur æðardúnsængur beint til viðskiptavina um heim allan. Þ...

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign
Fréttir 17. apríl 2024

Vörðust ásælni ríkisins í jarðareign

Kristín Lárusdóttir og Guðbrandur Magnússon, bændur að Syðri- Fljótum í Meðallan...

Breyttar reglur um flutning líflamba
Fréttir 17. apríl 2024

Breyttar reglur um flutning líflamba

Verklagsreglur hafa verið endurskoðaðar um flutning á lömbum með verndandi eða m...

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins
Fréttir 16. apríl 2024

Gýgjarhólskot ræktunarbú ársins

Á fagfundi sauðfjárræktarinnar sem haldinn var á dögunum var Gýgjarhólskot í Bis...

Verulegur samdráttur í innflutningi á áburði
Fréttir 16. apríl 2024

Verulegur samdráttur í innflutningi á áburði

Matvælastofnun hefur birt leiðrétta skýrslu yfir áburðareftirlit síðasta árs.

Ísteka í yfirburðastöðu
Fréttir 15. apríl 2024

Ísteka í yfirburðastöðu

Í nýrri ályktun Samkeppniseftirlitsins kemur fram að Ísteka beiti sterkri stöðu ...