Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Þegar búið var að tína sveppina voru þeir matreiddir og snæddir.
Þegar búið var að tína sveppina voru þeir matreiddir og snæddir.
Líf og starf 24. september 2019

Sveppauppskera í tæpu meðallagi

Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir
Árleg sveppaganga Skógræktar­félags Eyfirðinga var farin á dög­unum og að þessu sinni var  gengið um Miðhálsskóg í Öxnadal. 
 
Um 25 manns lögðu leið sína í skóginn í kvöldblíðunni og söfnuðu í matbúr vetrarins. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir sveppafræðingur leið­beindi fólki um flest sem viðkemur matsveppum og greindi fjölmarga nágranna þeirra í skóginum, auk þess að elda dýrindis sveppamáltíð í lok göngunnar.  
 
Sveppauppskera hefur verið í tæpu meðallagi í Eyjafirði þetta sumarið. Sveppir létu kræla á sér frekar snemma sumars en síðustu vikur hafa sum staðar verið minna gjöfular en væntingar stóðu til þegar að matsveppum kemur. 
 
Fróðleikur og útivera
 
Ingólfur Jóhannsson, framkvæmda­stjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga, segir áhuga fólks á að tína mat­sveppi vaxandi, en félagið hefur nokkur undanfarin ár boðið upp á sveppagöngur og þátttakendum fjölgar ár frá ári. „Þetta hafa verið skemmtilegar ferðir, Guðríður Gyða ber á borð fyrir okkur heil­mikinn fróðleik og það er auðvitað það sem margir sækjast eftir, að fræðast betur um sveppina og hvað hægt sé að gera úr þeim. En eins hafa líka margir gaman af útiverunni, fara út fyrir stígakerfi skóganna og leita að sveppum er góð skemmtun og jafnast á við að fara í berjamó. Mörgum þykir þetta ómissandi hluti af haustinu,“ segir Ingólfur. 
 
Ólafur Thoroddsen, formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga, og Halldór Pétursson á spjalli meðan beðið er eftir rjúkandi ketilkaffinu.
Gerum okkur dagamun
Líf og starf 22. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Kóngurinn í Skagafirði
Líf og starf 22. júlí 2024

Kóngurinn í Skagafirði

Jón Arnljótsson, sauðfjárbóndi á Ytri- Mælifellsá í Skagafirði, hefur lengi veri...

Safnar saman þekkingu um alþýðulækningar
Líf og starf 18. júlí 2024

Safnar saman þekkingu um alþýðulækningar

Skoða á hefðir og notkun óhefðbundinna lækninga á Íslandi í norrænni rannsókn. A...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 18. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 15. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er eitthvað órór þessa dagana enda einhver stífla á verkefnum í krin...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 12. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Bænder
Líf og starf 12. júlí 2024

Bænder

Sumir fara á Tinder. Aðrir hafa ekki tíma í slíkt vegna anna í búskapnum. Hér, k...

Vættafundur á Eyjabökkum
Líf og starf 10. júlí 2024

Vættafundur á Eyjabökkum

Orðsins list kemur að þessu sinni frá Oddbjörgu Sigfúsdóttur.