Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Algalíf skrifar undir samning um þróun á lífplasthúð úr þörungahrati
Fréttir 5. maí 2022

Algalíf skrifar undir samning um þróun á lífplasthúð úr þörungahrati

Höfundur: Vilmundur Hansen

Líftæknifyrirtækið Algalíf Iceland ehf. var stofnað 5. maí 2012 og er því tíu ára. Það er Algalíf mikil ánægja á þessum tímamótum að skrifa undir samning við sprotafyrirtækið Marea ehf. um þróun á lífplasthúð (e. Food coating) úr þörungahrati.

Um er að ræða næfurþunna lífniðurbrjótanlega (e. biodegradable) húð um matvæli sem mun bæði minnka plastnotkun og draga úr matarsóun með því að auka geymsluþol matvæla.

Í frétt á heimasíðu Algalíf. Þessi nýting er nýnæmi og getur orðið mikilvægt skref til aukinnar sjálfbærni á Íslandi og innlegg í verðmætaskapandi hringrásarhagkerfi framtíðarinnar. Hún kemur til viðbótar núverandi þróun Marea á lífplastfilmum úr þara.

Um Marea

Marea ehf. er sprotafyrirtæki á sviði líftækni, sem hefur undanfarin ár verið að þróa Þaraplast, lífplast úr þara. Marea hefur meðal annars hlotið styrki frá Tækniþróunarsjóði, hvatningarverðlaun sjávarútvegsráðstefnunnar og TM 2021 og er keppandi í úrslitum í alþjóðlegu TOM FORD Plastic Innovation Prize. www.marea.is

Um Algalíf

Líftæknifyrirtækið Algalíf er stærsta fyrirtækið í örþörungaframleiðslu á Íslandi og eitt af þeim stærstu í Evrópu. Það hefur getið sér gott orð á alþjóðavettvangi fyrir sjálfbærni, gæði og afhendingaröryggi. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 50 manns og ársveltan er rúmur einn og hálfur milljarður króna. Framkvæmdir við fjögurra milljarða þreföldun á framleiðslunni eru vel á veg komnar.

Algalíf leggur mikla áherslu á sjálfbærni en framleiðslan fer fram með umhverfisvænum orkugjöfum í stýrðu umhverfi innanhúss í 5.500 m² húsnæði á Ásbrú í Reykjanesbæ. Við framleiðsluna eru bundin um 75 tonn af koltvísýringi en um 60 tonn af súrefni eru losuð út í andrúmsloftið. Ekkert jarðefnaeldsneyti er notað í framleiðsluferlinu hjá Algalíf og efnanotkun er í lágmarki. Einu hráefnin til framleiðslunnar eru auk þörunganna sjálfra, vatn, næring og ljós (raforka). Annar úrgangur en súrefni er lífrænt þörungahrat sem nú er nýtt sem áburður. www.algalif.is

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...

Sólarsellustyrkir
Fréttir 22. júlí 2024

Sólarsellustyrkir

Orkusetur Orkustofnunar hefur auglýst eftir umsóknum um sólarsellustyrki.

Gæðingafeður og mæður
Fréttir 19. júlí 2024

Gæðingafeður og mæður

Skýr frá Skálakoti átti flest afkvæmi á Landsmóti hestamanna í ár, 31 talsins.

Kúakaup fyrir dómi
Fréttir 19. júlí 2024

Kúakaup fyrir dómi

Kúakaup milli tveggja bænda rötuðu til héraðsdóms á dögunum.

Úthlutun aflamarks
Fréttir 18. júlí 2024

Úthlutun aflamarks

Nýverið fundaði stjórn Byggðastofnunar vegna fyrirhugaðrar úthlutunar sértæks by...

Lóga þarf hrúti
Fréttir 18. júlí 2024

Lóga þarf hrúti

Bóndi þarf að afhenda Matvælastofnun ákveðinn hrút til að kanna útbreiðslu á rið...

Árangurinn kom á óvart
Fréttir 18. júlí 2024

Árangurinn kom á óvart

Fjölskyldan í Strandarhjáleigu í Rangárþingi eystra átti góðu gengi að fagna á n...