Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Ford Mustang Mach-ESR AWD.
Ford Mustang Mach-ESR AWD.
Mynd / HLJ
Á faglegum nótum 6. apríl 2022

Ford Mustang fjórhjóladrifinn, 100% rafmagnsbíll

Höfundur: Hjörtur L. Jónsson - liklegur@internet.is

Ford Mustang hefur verið þekkt vörumerki síðan 1961 þegar fyrsti prufubíllinn var framleiddur, en 1965 var byrjunin á gullaldarárum Mustang og seldust yfir 2 milljónir Mustang bíla á árunum 1965 til 1969. Metsala var 1966 þegar 607.568 Mustang bílar voru seldir á einu ári.

Nú er Ford komið með nýjan 100% rafmagnsknúinn fjórhjóla­drifinn Mustang sem hægt er að fá í fimm mismunandi útfærslum. Ódýrasti Mustang Mach-E er á verði frá 6.890.000 og sá dýrasti er Mach-E GT LR, sem er 487 hestöfl og kostar frá 10.990.000.

Þegar mælaborðið segir að 79 km séu eftir á rafhlöðu kemur viðvörun og áminning um að fara að hlaða bílinn.

Prófaði Mustang Mach-E SR AWD

Mustanginn sem var prófaður er sagður vera 269 hestöfl, á að geta farið úr kyrrstöðu í 100 á 5,6 sek., fjórhjóladrifinn með 75kWh, en hægt er að fá stærri rafhlöður, eða 98 kWh, sem eiga að koma bílnum í allt að 610 km við bestu skilyrði. Uppgefin drægni á prufubíl er um 400 km. Mustang er þannig útbúinn að þegar maður setur í gang mælir hann hitann úti og gefur þá upp drægnina miðað við hitastig við gangsetningu sem var 358 km, í mínu tilfelli í tveggja stiga hita.

Fyrri daginn keyrði ég bílinn um 200 km og taldi rafhlaðan tiltölulega rétt niður í samræmi við ekna kílómetra.

Seinni dagurinn var kaldari og líka verra færi og taldi mælirinn heldur hraðar niður. Eknir voru um 80 km, en rafhlöðumælirinn taldi nálægt 100. Taka skal fram að bíllinn var kaldur og ekki í hleðslu yfir nóttina, en hleðslan hitar rafhlöðuna.

Á gamla Mustang var oft kíkt á 8 strokka vélina, en í þessum er lítið farangursrými.

Ekki skemmtilegt að prófa bíl á skemmdu og holóttu slitlagi

Ástand vega hér í Reykjavík er þannig að sumar götur er vart keyrandi vegna holuskemmda. Smæstu holurnar í Reykjavík voru verri fyrir fjöðrunina á bílnum en holótti malarvegurinn heim að sveitabænum í Kjósinni sem ég keyrði. Ég var ekkert að hlífa bílnum fyrir holunum þar, vitandi að ég væri á bíl sem var yfir tvö tonn og ekkert varadekk og því í hættu á að höggva dekk í holu. Holur í hefðbundnum malarvegum eru mun hættuminni en malbiksholur með sínar hvössu brúnir sem þarf að varast mun meir á þyngri bílum. Á þeim vegum sem malbik var óskemmt var virkilega ljúft að keyra bílinn. Eins og alla bíla sem ég prófa þá hávaðamældi ég hann á 90 km hraða og kom Mustanginn ágætlega út í mælingunni, var 67,8 db og það á vetrardekkjum.

Bremsudælurnar eru næstum eins stórar og í vörubíl, en þær virka vel.

Fjórhjóladrifið virkaði vel í hálku og bremsur líka

Bíllinn er fljótur að hitna að innan og gott að hafa hita í stýrinu. Almennt eru aksturstölvur í nútímabílum flóknar fyrir mér, en í þessum bíl fannst mér ég vera nokkuð laginn við að læra á það sem ég var að leita eftir.

Bíllinn er með mikið af ýmiss konar öryggisbúnaði og þægindum, svo sem upphitaða framrúðu, akreinalesara, árekstrarvara, nema sem skynjar gangandi vegfarendur, blindhornsvara og ýmislegt fleira. Á nokkrum stöðum þar sem ég ók var mikil hálka og fannst mér fjórhjóladrifið skila bílnum vel áfram. Hann var fljótur að ná hraða, en vitandi af miklum þunga bílsins þá fannst mér hann bremsa óvenju vel miðað við skriðþunga og bremsaði nánast alltaf beint í hálkunni.

Gott verð miðað við það sem í bílnum er

Farangursrýmið er gott, en geymslu­rými er bæði að framan og aftan. Að vísu frekar lítið að framan sem tekur ekki nema tvo til þrjá innkaupapoka.

Sætin eru góð, bæði fram- og aftursæti, en þegar ég settist í aftursætið minntist ég aftursætanna í gamla 1966 Mustang sem voru einn helsti ókostur þeirra bíla og ekki góð fyrir lengri keyrslur. Þegar ég bar saman það sem í bílnum er og verðið þá finnst mér ekki mikið verð fyrir bílinn, 7.990.000. Samt hefði ég viljað sjá varadekk. Eins að maður þurfi ekki að muna að kveikja ljósin í hvert skipti sem maður leggur upp í ökuferð til að fá ljósin aftan á bílnum til að vera löglegur í umferðinni. Bíll sem er 2.086 kg er í mikilli hættu á að höggva dekk í færð eins og verið hefur að undanförnu. Þar sem að dekkin eru af stærðinni 225/55/19 er ekki nema um 12 cm fjöðrun sem maður fær út úr hjólbarðanum.

Fannst það ókostur að þurfa alltaf að muna að kveikja ljósin í hvert sinn sem ég fór af stað til að fá afturljósin á.

Helstu mál og upplýsingar:

Þyngd 2.086 kg
Hæð 1.624 mm
Breidd 1.881mm
Lengd 4.713 0mm

Vinnuaðferðum skilað til nýrrar kynslóðar
Fréttir 15. desember 2025

Vinnuaðferðum skilað til nýrrar kynslóðar

Út eru komnar þrjár bækur um verk Gunnars Bjarnasonar húsasmíðameistara sem smíð...

Kolefnisspor íslenskra matvæla á pari við Evrópu
Fréttir 11. desember 2025

Kolefnisspor íslenskra matvæla á pari við Evrópu

Ný rannsókn Matís sýnir að kolefnisspor helstu íslenskra matvæla – mjólkur, kjöt...

Þörungakjarni með mörg hlutverk
Fréttir 11. desember 2025

Þörungakjarni með mörg hlutverk

Undirrituð hefur verið formleg viljayfirlýsing um stofnun Þörungakjarna á Akrane...

Húsaeiningar frá Noregi
Fréttir 9. desember 2025

Húsaeiningar frá Noregi

Nýlega komu um tvö þúsund fermetrar af svonefndum „Modulum“, sem eru forsmíðaðar...

Unnið að friðun sex svæða á landsbyggðinni
Fréttir 9. desember 2025

Unnið að friðun sex svæða á landsbyggðinni

Alþingi hefur samþykkt framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár til ársins 2029. Um tí...

Gervigreind í Grímsnesi
Fréttir 9. desember 2025

Gervigreind í Grímsnesi

Grímsnes- og Grafningshreppur tekur nú þátt í þróunarverkefni í samstarfi við up...

Jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni
Fréttir 9. desember 2025

Jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni

Þingsályktunartillaga um nýtt fyrirkomulag jarðakaupa frumkvöðla á landsbyggðinn...

Þurfum að viðhalda sérstöðu og forskoti
Fréttir 8. desember 2025

Þurfum að viðhalda sérstöðu og forskoti

Niðurstöðu COP30 sem fram fór í Brasilíu í nóvember hefur verið lýst sem lægsta ...

Af hverju er T137 betra?
16. desember 2025

Af hverju er T137 betra?

Svínaskanki að þýskum sið
16. desember 2025

Svínaskanki að þýskum sið

Ekki gripið í tómt
16. desember 2025

Ekki gripið í tómt

KR-ingar efstir
16. desember 2025

KR-ingar efstir

Fiskur sem ekki má veiða
30. apríl 2018

Fiskur sem ekki má veiða