Bovine Parainfluensa 3 vírus greinist í fyrsta sinn hér á landi
Nýverið greindist Bovine Parainfluenza Virus 3 (BPIV3) í fyrsta skipti hér á landi.
Um er að ræða veiru sem veldur vægri öndunarfærasýkingu í nautgripum. Ekki er talin ástæða til að grípa til sérstakra aðgerða vegna greiningarinnar en Matvælastofnun vill upplýsa um málið og um leið minna á mikilvægi sóttvarna í umgengni við nautgripi.
Ekki hafa verið mæld mótefni reglubundið gegn þessari veiru þannig að ekki er vitað hvort um er að ræða einstakt tilfelli eða hvort veiran sé útbreidd í nautgripastofninum. Veiran veldur oftast vægum einkennum og sýking getur því hafa farið það dult að ekki hafi orðið vart við hana.
Öndunarfærasýkingar eru mjög sjaldgæfar í nautgripum á Íslandi og sýni því sjaldan tekin til rannsókna á smitefnum sem þeim valda og ekki hefur verið talin ástæða til þess að skima fyrir þeim sérstaklega. En í ljósi þessarar greiningar er stefnt að því að kanna útbreiðslu veirunnar á næstunni.
Tilefni þess að gerð var mæling á mótefnum gegn þessari veiru, ásamt fleiri veirum, var að á kúabúi á NAlandi voru kýr með skitu og einkenni frá öndunarfærum á sama tíma. Kýrnar voru að veikjast af skitu í annað sinn á einu ári, sem er óvanalegt. Þær urðu mun veikari í seinna skiptið og sýndu eins og áður segir einkenni frá öndunarfærum á sama tíma.
Um var að ræða þurran hósta, mæði við áreynslu og blóðnasir. Einkennin fóru yfir allt fjósið en minna virtist vera um blóðnasir hjá kálfunum. Tekin voru sýniúr6kúmábænumogsá Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum um að senda sýnin til erlendra rannsóknarstofa í viðeigandi rannsóknir miðað við sjúkdómseinkenni. Sýnin voru öll neikvæð m.t.t. mótefna gegn smitandi slímhúðarpest (BVD), smitandi barkabólgu (IBR (BHV1)) og smitandi öndunarfærabólgu (BRSV) en 5 sýni af 6 voru jákvæð hvað varðar mótefni gegn Bovine Parainfluensa 3 virus (BPIV3).
BPIV3 er landlæg í nautgripum víðast hvar í heiminum. Veikindi eru algengust í kálfum sem ekki hafa fengið næg mótefni í gegnum brodd. Sýkingin er yfirleitt væg. Helstu einkenni eru hiti, nefrennsli og þurr hósti. Í kjölfar BPIV3 sýkingar geta komið önnur smitefni, sem valda mun alvarlegri einkennum. Ekki varð vart við nein alvarlegri einkenni í kjölfar sýkingarinnar á umræddum bæ og hafa gripirnir allir náð sér og eru einkennalausir.
Þó BPIV3 hafi ekki greinst áður hér á landi telur Matvælastofnun ekki ólíklegt að BPIV3 sé í einhverjum mæli til staðar í nautgripum. Fyrirhugað er að taka sýni víða á landinu á næstu mánuðum til að kanna útbreiðslu veirunnar.
Mikilvægt er að bændur og allir sem starfa sinna vegna koma inn á kúa og nautaeldisbú gæti ávallt vel að sóttvörnum. Mikilvægustu liðir í að draga úr hættu á smitdreifingu er að klæðast hreinum hlífðarfatnaði, þrífa skófatnað vel eftir hverja heimsókn og þvo hendur.
Tekið skal fram að veiran veldur ekki sýkingum í fólki og hefur ekki áhrif á heilnæmi mjólkur og kjöts.