Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups.
Mynd / Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Fréttir 7. febrúar 2022

Ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála undirritar samning um hringrásarhraðal

Höfundur: Vilmundur Hansen

Ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála undirritaði í dag samning við Icelandic Startups um stuðning við hringrásarhraðalinn Hringiðu.

Til þess að færa íslenskt samfélag úr línulegu hagkerfi yfir í hringrásarhagkerfi þarf nýjar lausnir í allri virðiskeðju vöru og þjónustu, að þróa nýja tækni og aðlaga þekkta tækni að íslenskum aðstæðum.

Á vef umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins segir að með viðskiptahraðli með áherslu á hringrásarhagkerfi megi draga fram, efla og styðja nýja tækni og aðferðir sem raunverulega leysa aðsteðjandi úrlausnarefni í umhverfismálum með það fyrir augum að þátttakendur verði í lok hraðals í stakk búnir að kynna verkefni sín fyrir fjárfestum og leggja fram vandaðar umsóknir um styrki í Evrópusjóði, svo sem LIFE og Horizon 2020.

Viðskiptahraðallinn byggir á alþjóðlegri fyrirmynd og býður upp á metnaðarfullan vettvang til vöruþróunar og góðan undirbúning fyrir fjármögnun. Þungamiðjan í hraðlinum felst í skipulögðum fundum þátttakenda með reyndum frumkvöðlum, fjárfestum og öðrum sérfræðingum. Um er að ræða sannreynt ferli þar sem allt að tíu sprotaverkefnum er veittur aðgangur að breiðu tengslaneti leiðbeinenda úr atvinnulífinu og markvissri þjálfun sem miðar að því að koma vöru á markað.

Í fréttatilkynningu vegna undirritunar samingsins er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Til ná markmiðum okkar í umhverfismálum verðum við að nýta okkar helstu auðlind, hugvitið. Þessi undirritun í dag er liður í að styrkja frumkvöðla til góðra verka.“

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið leggur upp með að nýsköpun, rannsóknir og þróun leiki lykilhlutverk við umskiptin yfir í hringrásarhagkerfi. Meðal annars til að efla þessa þætti veitir ráðuneytið árlega styrki vegna hringrásarverkefna. Loftslagssjóður veitir jafnframt nýsköpunarstyrki og skarast loftslagsáherslur verkefna oft við hringrásaráherslur. Ísland tekur nú enn fremur þátt í LIFE-áætlun Evrópusambandsins. Með því hafa opnast möguleikar fyrir fyrirtæki, sveitarfélög, frjáls félagasamtök og fleiri íslenska aðila til að sækja erlenda styrki til verkefna sem snerta hringrásarhagkerfið.

Gert er ráð fyrir hringrásarhraðallinn fari af stað í vor.

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...

Sólarsellustyrkir
Fréttir 22. júlí 2024

Sólarsellustyrkir

Orkusetur Orkustofnunar hefur auglýst eftir umsóknum um sólarsellustyrki.

Gæðingafeður og mæður
Fréttir 19. júlí 2024

Gæðingafeður og mæður

Skýr frá Skálakoti átti flest afkvæmi á Landsmóti hestamanna í ár, 31 talsins.

Kúakaup fyrir dómi
Fréttir 19. júlí 2024

Kúakaup fyrir dómi

Kúakaup milli tveggja bænda rötuðu til héraðsdóms á dögunum.

Úthlutun aflamarks
Fréttir 18. júlí 2024

Úthlutun aflamarks

Nýverið fundaði stjórn Byggðastofnunar vegna fyrirhugaðrar úthlutunar sértæks by...

Lóga þarf hrúti
Fréttir 18. júlí 2024

Lóga þarf hrúti

Bóndi þarf að afhenda Matvælastofnun ákveðinn hrút til að kanna útbreiðslu á rið...

Árangurinn kom á óvart
Fréttir 18. júlí 2024

Árangurinn kom á óvart

Fjölskyldan í Strandarhjáleigu í Rangárþingi eystra átti góðu gengi að fagna á n...