Dráttarvélar ársins
Landbúnaðarblaðamenn hafa valið dráttarvélar ársins 2025 í sex flokkum.
Á hverju ári veitir nefnd blaðamanna frá 25 Evrópulöndum verðlaun fyrir dráttarvélar ársins. Að baki verðlaununum standa landbúnaðarblaðamenn sem sérhæfa sig í umfjöllun um búvélar.
Í flokki öflugustu dráttarvélanna (e. highpower) sigraði Case IH Quadtrac 715. Sá traktor er með 778 hestafla mótor, liðstýrður og á fjórum beltum. Í flokki dráttarvéla í millistærð (e. midpower) fór Fendt 620 Vario DP með sigur af hólmi. Þessi traktor myndi eflaust teljast stór á íslenskan mælikvarða, en vélin í honum skilar 224 hestöflum. Í flokki dráttarvéla til almennra nota (e. utility) var hinn 117 hestafla Steyr 4120 Plus traktor valinn bestur.
Í flokki sérhæfðra traktora (e. specialized) sigraði Antonio Carraro Tony 8900 TRG. Það er lítil dráttarvél sem er meðal annars hugsuð til nota á vínekrum. Í flokki sjálfbærra dráttarvéla (e. sustainable) var Fendt e107 Vario valin best, en hún er rafknúin. Þá var sérstakur flokkur fyrir landbúnaðarþjarka (e. bot) þar sem AgXeed 5.115T2 var veitt viðurkenning. Það er sjálfkeyrandi lítill traktor á beltum sem er hægt að tengja við fjölbreytt úrval landbúnaðartækja án breytinga.