Auglýst eftir umsóknum landeigenda sem hafa áhuga á endurheimt votlendis
Landgræðslan auglýsir nú eftir umsóknum frá landeigendum sem hafa áhuga á endurheimt votlendis á sínu landi. Styrkveiting er greiðsla á öllum framkvæmdarkostnaði við endurheimt votlendissvæða.
Þess má geta að í fyrra bárust bárust þrjár umsóknir frá landeigendum á sunnanverðu Snæfellsnesi og svo heppilega vildi til að tvær jarðanna liggja saman. Samtals eru þessar tvær jarðir um 100 hektarar sem er stærsta samfellda votlendissvæðið sem Landgræðslan hefur endurheimt á einum stað.
Á svona stóru svæði eru aðstæður fjölbreyttar og úrlausnarefnin mörg. Það fer því ekki hjá því að reynslan á Snæfellsnesi mun nýtast vel við endurheimt votlendis í framtíðinni. Verktakar unnu á svæðinu frá október til loka nóvember og unnu afar gott verk undir leiðsögn Landgræðslunnar. Endurheimt votlendis á öðrum stöðum tókst vel.
Þegar búið er að fara yfir umsóknir sem berast að þessu sinni, og velja þær sem koma til álita, munu starfsmenn Landgræðslunnar heimsækja eigendur jarðanna og leggja mat á hvort svæðin uppfylli skilyrði sem sett eru. Í framhaldinu verða svæðin kortlögð og ýmsar athuganir gerðar. Í þeirri vinnu má helst nefna athugun á vatnsbúskap svæðanna, kortlagningu skurða og svæða á milli þeirra og innsetningu vatnshæðarröra til að mæla breytingar á grunnvatnsstöðu ásamt drónamyndatökum. Ýmist eru verktakar fengnir úr heimabyggð til að vinna verkin eða landeigendur gera sjálfir það sem gera þarf.
Venja er að leyfa landinu að jafna sig í nokkra mánuði eftir framkvæmdir að hausti. Svæðin eru síðan tekin út næsta vor til að athuga hvort sé þörf á lagfæringum á skurðafyllingum eða stíflum. Þá eru myndir teknar og væntanlegar framkvæmdir kortlagðar.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Landgræðslunnar, www.land.is