Heili 245 ára hákarls sýnir engin merki öldrunar
Nýverið birtist vísindagrein um rannsóknir á áhrifum öldrunar á heila un það bil 245 ára gamals hákarls í samanburði við sama ferli í heila manna. Hákarl þessi veiddist í haustralli 2017 djúpt vestur af landinu. Klara Jakobsdóttir, sérfræðingur á botnsjávarsviði, er einn af höfundum greinarinnar.
Öldrun hefur ýmis áhrif á frumur í heila manna sem eru vel þekktar. Í frétt á vef Hafrannsóknastofnunar segir að rannsóknir hafi hins vegar bent til að hákarl (Somniosus microcephalus) geti náð óvenjulega háum aldri, eða hæstum aldri allra hryggdýra, jafnvel allt að 4–500 árum. Því var markmið rannsóknarinnar að athuga hvort greina mætti svipuð áhrif öldrunar í heila hákarla eins og þekkt eru í heilum manna og rotta.
Engin merki öldrunar
Niðurstaða rannsóknarinnar var að nánast engin þekkt merki öldrunar eins og hún lýsir sér í heila manna með próteinútfellingum og æðakölkun fundust í heila hákarlsins. Jafnframt sáust engin merki um taugahrörnun. Þetta bendir til að heili hryggdýra geti haldist lítið eða óbreyttur í mjög langan tíma líkt og sýnt hefur verið fram á í háöldruðum einstaklingum, 100 ára eða eldri.
Umhverfi og atferli
Höfundar greinarinnar leiða líkum að því að umhverfi og atferli séu ástæður þess hversu lengi hákarl lifir án sýnilegra áhrifa öldrunar á heila. Hákarl er talinn hægsyndur og heldur að mestu til í stöðugu en köldu umhverfi á tiltölulega miklu dýpi í sjó sem er um 4 °C heitur.
Þetta veldur því að líklega eru efnaskipti hæg og vísbendingar eru um að blóðþrýstingur hákarls sé mun lægri en hjá öðrum hákarlategundum. Lykillinn að háum aldri virðist því vera að hreyfa sig lítið og halda sig í kulda og myrkri, að minnsta kosti fyrir hákarl.