Sýklalyfjaónæmi gæti verið meðvirkandi ástæða fyrir dauða af völdum COVID-19
Í kjölfar COVID-19 sýkinganna sem ganga yfir heiminn heyrist æ oftar að þeir sem hafa látist hafi verið með undirliggjandi sjúkdóma sem hafi magnast upp vegna veirunnar. Oft er talað um sjúkdóma sem tengjast lungum og öndunarfærum eða sýklalyfjaónæmi.
Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans, segir að sýklalyfjaónæmi gæti vel verið meðvirkandi ástæða fyrir dauða vegna COVID-19 en ekki eina ástæðan.
Blanda sýklalyfjaónæmis og COVID-19
Fyrir skömmu birtist á vefsíðu Aftenposten grein eftir Erik Martiniussen, höfund bókarinnar Stríðið við bakteríurnar, sem ber fyrirsögnina „Derfor tar koronaviruset så mange liv i Italia“.
Í greininni segir Martiniussen að mögulegt sé að háar dánartölur á Ítalíu orsakist af því sem hann segir vera lífshættulega blöndu af sýklalyfjaónæmum bakteríum og COVID-19. Martiniussen segir að fjöldi fólks á Ítalíu sem smitast hafi af veirunni látist ekki af hennar völdum heldur af undirliggjandi sjúkdómum eða af sýklalyfjaónæmum bakteríum.
Martiniussen bendir á að dánartíðni í Noregi og annars staðar þar sem notkun á sýklalyfjum sé tiltölulega lítil, á það einnig við um Ísland, sé mun minni en þar sem notkunin á sýklalyfjum er meiri. Samkvæmt því sem segir í greininni látast árlega tæplega 11 þúsund manns á Ítalíu vegna sýklalyfjaónæmra baktería, aðallega E.coli, en 69 í Noregi.
Fylgisýkingar
Karl G. Kristinsson, yfirlæknir á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og prófessor í sýklafræði, segir að þrátt fyrir að manna á meðal sé talað um COVID-19 sé það nafnið á sjúkdómnum en að veiran sjálf heiti SARS- CoOV-2.
„Ég hef sjálfur og fleiri velt fyrir sér af hverju dánartíðnin er hærri á Ítalíu en í flestum öðrum löndum. Bent hefur verið á að í mörgum tilfellum sé um eldri einstaklinga að ræða og að heilbrigðisþjónustan hafi ekki ráðið við að veita öllum viðeigandi meðferð.
Því skal þó ekki neita að ein möguleg ástæða þessa séu fjölónæmar bakteríur þar sem bakteríusýkingar koma oft upp í kjölfar veirusýkinga. Í nýlegri grein í Lancet var greint frá því að í Wuhan í Kína voru 50% af þeim sem létust með fylgibakteríusýkingu sem kom í kjölfar veirusýkingarinnar. Þetta er mjög hátt hlutfall og hugsanlega má útskýra það með því að flestir þessara sjúklinga fóru í öndunarvél og það að fara í öndunarvél eykur hættuna á að fá bakteríusýkingu. Ef upp kemur bakteríusýking verður að meðhöndla hana með sýklalyfjum.
Flestum gefin sýklalyf
„Flestir sjúklingar sem sýkjast af COVID-19 og þurfa að leggjast inn á gjörgæsludeild, fara á sýklalyf, þrátt fyrir að vitað sé að sýklalyf virki ekki á veiruna.
„Sýklalyfin eru gefin til að koma í veg fyrir fylgisýkingu eða til að meðhöndla hana sé hún til staðar. Slíkt á að geta gengið og komið í veg fyrir fylgisýkingar í þeim tilvikum þar sem bakteríurnar eru næmar fyrir lyfjunum sem verið er að nota.
Samkvæmt úttekt sem var gerð áður en COVID-19 kom upp, þá látast langflestir í heiminum í Evrópu af völdum nær alsýklalyfjaónæmra baktería á Ítalíu og þannig hefur það verið í mörg ár. Ef bakteríuflóran á sjúkrahúsum á Ítalíu er í samræmi við þetta, er ástandið þar mun verra en ef eingöngu væri um bakteríur að ræða sem væru ónæmar fyrir hefðbundnum sýklalyfjum,“ segir Karl.
Gæti verið meðvirkandi
„Sýklalyfjaónæmi gæti vel verið meðvirkandi ástæða fyrir dauða vegna COVID-19 en ekki eina ástæðan.“
Aðspurður segir Karl að dánartíðni á Spáni sé einnig há og að þar sé sýklalyfjaónæmi einnig mikið. „Það er þó líklega ekki eins slæmt og á sjúkrahúsum á Ítalíu en samt ekki gott, enda dánartíðin þar há. Hvað varðar Þýskaland, þar sem talsvert er notað af sýklalyfjum, er staðan á spítölum mun betri þrátt fyrir að hún sé ekki eins góð og hjá okkur og á Norðurlöndunum.“
Sýklalyfjaónæmi ógn við lýðheilsu
Alþjóða heilbrigðisstofnunin, Evrópusambandið og Smitvarnarmiðstöð Bandaríkjanna hafa lýst því yfir að sýklalyfjaónæmi sé ein mesta ógnin við lýðheilsu í heiminum í dag.