Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Loðmundur.
Loðmundur.
Mynd / HKr
Fréttir 17. desember 2020

Hálendisþjóðgarður 30% af Íslandi og stærsti þjóðgarður Evrópu

Höfundur: Vilmundur Hansen

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi um hálendisþjóðgarð. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þjóðlendur í sameign þjóðarinnar innan mið­hálendislínu verði gerðar að þjóðgarði. Á miðhálendinu eru ein stærstu óbyggðu víðerni Evrópu og ómetanlegar náttúru- og menningarminjar. Frumvarpið er til meðferðar hjá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.

Talsverð umræða hefur orðið um stofnun þjóðgarðsins og ekki allir sammála um ágæti hans og óttast að stofnun hans muni setja skorður á nýtingu lands á hálendinu. Stjórn margra sveitarfélaga sem liggja að væntanlegum þjóðgarði hafa lýst áhyggjum yfir að þjóðgarðurinn hefti rétt sveitarfélaganna til sjálfsstjórnar. Aðrir segja að með stofnun þjóðgarðsins skapist ótal ný tækifæri í ferðaþjónustu.

Á Facebook eru tvær fylkingar áberandi um málið. Önnur fylkingin merkir mynd af sér „HÁLENDISÞJÓÐGARÐUR? JÁ TAKK“ en þeir sem er andsnúnir eða í efa um tillöguna eins og hún er lögð fram með orðum sem Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, lét falla á þingi um þá sem eru mótfallnir og kallaði „ÖRLÍTINN GRENJANDI MINNIHLUTA“.

Samkvæmt frumvarpi er gert er ráð fyrir að hálendisþjóðgarður nái yfir um 30% af Íslandi. Um helmingur svæðisins nýtur nú þegar verndar og má þar nefna Vatnajökulsþjóðgarð, Hofsjökul og Þjórsárver, Kerlingarfjöll, Land­mannalaugar og Hveravelli. Kveðið er á um hálendisþjóðgarð í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Samtal um sátt hefur mistekist

Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitastjórnarráðherra segir að samtal um sátt hafi mistekist við það fólk sem býr næst þjóðgarðinum og hefur sinnt afréttinum sínum, hvort sem er í gegnum sveitarstjórn eða sinnt verkefnum, til að mynda landgræðslu, endurbyggingu menn­ingar­verðmæta, náttúruvernd, veiðifélögum, smalamennsku eða öðrum nytjum. Samtalið hefur einnig mistekist um að tryggja frjálsa för þannig að gangandi, hjólandi, ríðandi og akandi geti ferðast eins og nú um miðhálendið án takmarkana. Mikilvægt er að takmarka ekki umferð hjá einum hópi frekar en öðrum.

Hálendisþjóðgarður er stór og metnaðarfull hugmynd

Bændablaðið sendi fyrirspurn á Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra um viðbrögðin við frumvarpinu og hvort hann teldi að það færi óbreytt í gegnum þingið. Í svari Guðmundar segir að það séu gerðar einhverjar breytingar á langflestum stjórnarfrumvörpum í meðförum þingsins og að hann eigi von á að svo verði líka með þetta frumvarp.

Hvað varðar viðbrögð sveitar­félaga sem eiga land að mið­há­lendinu segir Guðmundur að hann hafi átt mjög gott samtal við fulltrúa sveitarfélaga. „Haustið 2019 heimsótti ég allar sveitarstjórnir sem land eiga að miðhálendinu, ég kynnti síðan frumvarpið á átta stöðum á landinu í byrjun árs, og síðar áttum við í ráðuneytinu líklega yfir tíu fundi með fulltrúum sveitarfélaga til að ná sátt um skipulagsvaldið. Viðbrögð sveitarfélaganna við tillögum mínum varðandi skipulagsvaldið voru í langflestum tilvikum mjög góð og ég tel okkur hafa fundið góða lendingu þar. Það eru samt sem áður uppi skiptar skoðanir í þessu máli. Hér er líka um að ræða afar umfangsmikið mál og mikil verðmæti í húfi. Ég hvet sveitarfélögin til að líta til tækifæranna sem felast í stofnun hálendisþjóðgarðs, fyrir vernd náttúrunnar, uppbyggingu atvinnutækifæra, ekki síst á láglendi og aukin störf heima í héraði. Reynslan af öðrum þjóðgörðum sýnir að þeim fylgir efnahagslegur ávinningur.“

Talsvert er um almenna gagnrýni á frumvarpið í samfélaginu og svo sértækari gagnrýni um að þetta muni stoppa veiðar, beit og jafnvel akstur um hálendið?

„Hálendisþjóðgarður er stór og metnaðarfull hugmynd. Hún felur í sér stofnun þjóðgarðs á 30% landsins, á þjóðlendum sem eru sameign þjóðarinnar. Ég tel að með þjóðgarði náist heildaryfirsýn, utanumhald og aukið fjármagn fyrir svæðið sem muni styrkja það góða starf sem víða er unnið á hálendinu í dag í samvinnu ríkis, sveitarfélaga og hagsmunaaðila.

Hálendisþjóðgarður mun ekki koma í veg fyrir veiðar og beit á hálendinu og er í frumvarpinu gert ráð fyrir að hefðbundin nýting geti haldið áfram. Hún þarf þó líkt og annars staðar að vera sjálfbær og í samræmi við önnur lög. Hvað varðar akstur um hálendið, þá er það í höndum sveitarfélaga í dag að ákveða hvaða slóðar enda inni á skipulagsáætlunum sveitarfélaga. Með tilkomu hálendisþjóðgarðs eykst formleg aðkoma útivistar­félaga, nytjaréttarhafa og ferða­þjónustu að stefnumótun svæðis­ins. Þessir aðilar munu halda atkvæðis­rétti í umdæmisráðum og einnig fá atkvæðisrétt í stjórn hálendisþjóðgarðs, sem þau hafa ekki í Vatnajökulsþjóðgarði. Þannig munu þeir geta haft áhrif á stjórnunar- og verndaráætlanir, þar sem er einmitt fjallað um umferðarrétt, aðgengi, nytjar og takmarkanir á einstökum svæðum. Þeir sem mestar áhyggjur hafa haft af því að hálendinu verði lokað eða nytjar ekki heimilaðar með tilkomu þjóðgarðs munu hafa meiri áhrif á stefnumótun á svæðinu en nú gildir í Vatnajökulsþjóðgarði.

Frumvarpið tekur skýrt fram að almenningi er heimil för um hálendisþjóðgarð og dvöl á svæðinu. Kveðið er á um að akstur utan vega sé bannaður, en heimilt að aka á jöklum og snævi þakinni jörðu ef jörð er frosin, líkt og gildir á öllu landinu í dag. Ráðherra fær heimild til að setja reglur um dvöl, umgengi og umferð í þjóðgarðinum líkt og í lögum um Vatnajökulsþjóðgarð. Ráðherra er hins vegar ekki heimilt að loka öllu hálendinu eins og skilja mætti af umræðunni, enda eitt markmiða þjóðgarðsins að auðvelda almenningi að kynnast svæðinu. Ég hef auk þess engan áhuga á að loka hálendinu fyrir fólki. Ég deili ást og væntumþykju þess fólks sem hefur skoðun á þessu svæði og hvernig eigi að stýra því og ég á mínar bestu stundir uppi á hálendi Íslands. Ég myndi því aldrei vilja svipta aðra möguleikum á svipuðum upplifunum, en ég tel samt að reglur þurfi að gilda sem einhver takmörkun getur fylgt.“

Lundaveiðar leyfðar
Fréttir 24. júlí 2024

Lundaveiðar leyfðar

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja hefur samþykkt að heimila lundaveiði 27...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...

Sólarsellustyrkir
Fréttir 22. júlí 2024

Sólarsellustyrkir

Orkusetur Orkustofnunar hefur auglýst eftir umsóknum um sólarsellustyrki.

Gæðingafeður og mæður
Fréttir 19. júlí 2024

Gæðingafeður og mæður

Skýr frá Skálakoti átti flest afkvæmi á Landsmóti hestamanna í ár, 31 talsins.

Kúakaup fyrir dómi
Fréttir 19. júlí 2024

Kúakaup fyrir dómi

Kúakaup milli tveggja bænda rötuðu til héraðsdóms á dögunum.

Úthlutun aflamarks
Fréttir 18. júlí 2024

Úthlutun aflamarks

Nýverið fundaði stjórn Byggðastofnunar vegna fyrirhugaðrar úthlutunar sértæks by...

Lóga þarf hrúti
Fréttir 18. júlí 2024

Lóga þarf hrúti

Bóndi þarf að afhenda Matvælastofnun ákveðinn hrút til að kanna útbreiðslu á rið...