Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Nýr göngustígur í Vestmannaeyjum hefur fengið mikið lof fyrir plastgrindurnar, sem þar eru frá Ver lausnum.
Nýr göngustígur í Vestmannaeyjum hefur fengið mikið lof fyrir plastgrindurnar, sem þar eru frá Ver lausnum.
Mynd / MHH
Fréttir 24. nóvember 2021

Rúlluplast í plastgrindur í göngu­stígum og bílaplönum slær í gegn

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Fyrirtækið Ver lausnir í Garðabæ hefur verið að vinna að athyglisverðu verkefni þegar kemur að plastgrindum, sem notaðar eru víða á til dæmis göngustígum, bílaplönum og í landbúnaði, en grindurnar eru búnar til með því að endurvinna plastpoka og t.d. rúlluplast frá bændum. Grindurnar eru með 20 ára framleiðsluábyrgð.

„Við erum að flytja inn þessar grindur frá fyrirtæki í Þýskalandi sem heitir Purus Plastics, sem var stofnað 1984 í þeim tilgangi að endurvinna plast í vörur sem menga ekki og væru endurvinnanlegar. Á sama tíma væri þetta vara sem annars væri framleidd úr nýju hráefni.

Með hverri vöru sem er framleidd úr endurunnu plasti leggjum við mikilvægt framlag til að minnka CO2 fótspor okkar og koma í veg fyrir sóun auðlinda á skilvirkari hátt. Með þróun skynsamlegra og sjálfbærra lausna sem gegna lykilhlutverki við að styrkja jarðveginn og stuðla að eðlilegu grunnvatni í jörðinni.

Plastgrindurnar frá Ver lausnum eru komnar víða um land og njóta vinsælda.

Grindurnar hafa fengið aukið vægi þar sem ofanflóð verða tíðari með lokun jarðvegs með malbiki, steypu og hellum sem stýrir aðkomuvatni í frárennsliskerfin í þéttbýli. Þau voru hönnuð fyrir löngu síðan og geta ekki tekið við þessu aukna vatni og leiða því til flóða í þéttbýli,“ segir Magnús H. Sólmundsson hjá Ver lausnum.

Fyrirtækið hefur verið að selja þessar grindur síðan 2006 og er bílastæði við Háskólann í Reykjavík og stæði fyrir framan Össur með fyrstu verkefnum. Grindurnar eru komnar víða um land, á sumum stöðum sjást þær vel en annars staðar eru þær undir grasi eins og t.d. bílastæðið við Selfosskirkjuna, undir hellum eins og í Kalkofnsvegi í Reykjavík og möl, svo nokkuð sé nefnt. Þá eru grindurnar í nýjum göngustíg í Vestmannaeyjum.

„Við erum búnir að láta verksmiðjuna vinna 50 tonn af plasti sem kemur frá Terra og erum við að vonast til að áhugi verði hér á Íslandi til þess að mynda hringrás þannig að það fari plast héðan og unnið í verksmiðjunni og komi til baka sem grindur, sem væru notaðar í bílastæði og göngustíga í staðinn fyrir t.d. malbik,“ segir Magnús enn fremur.

Stofnanir út á land
Fréttir 24. júlí 2024

Stofnanir út á land

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan h...

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum
Fréttir 23. júlí 2024

Óska eftir sýnum úr dauðum kálfum

Rannsóknamiðstöð landbúnaðarins, RML, rannsakar nú erfðaorsakir kálfadauða.

Upphreinsun skurða
Fréttir 23. júlí 2024

Upphreinsun skurða

Búnaðarfélag Austur-Landeyja hefur sent sveitarstjórn Rangárþings eystra erindi ...

Sólarsellustyrkir
Fréttir 22. júlí 2024

Sólarsellustyrkir

Orkusetur Orkustofnunar hefur auglýst eftir umsóknum um sólarsellustyrki.

Gæðingafeður og mæður
Fréttir 19. júlí 2024

Gæðingafeður og mæður

Skýr frá Skálakoti átti flest afkvæmi á Landsmóti hestamanna í ár, 31 talsins.

Kúakaup fyrir dómi
Fréttir 19. júlí 2024

Kúakaup fyrir dómi

Kúakaup milli tveggja bænda rötuðu til héraðsdóms á dögunum.

Úthlutun aflamarks
Fréttir 18. júlí 2024

Úthlutun aflamarks

Nýverið fundaði stjórn Byggðastofnunar vegna fyrirhugaðrar úthlutunar sértæks by...

Lóga þarf hrúti
Fréttir 18. júlí 2024

Lóga þarf hrúti

Bóndi þarf að afhenda Matvælastofnun ákveðinn hrút til að kanna útbreiðslu á rið...