Safnar frásögnum um ísbirni
Höfundur: Vilmundur Hansen
Ísbjarnasögur er heiti á nýrri spurningaskrá sem Þjóðminjasafn Íslands sendir út um þessar mundir. Tilgangurinn með henni er að safna minningum fólks um ísbirni með áherslu á að rannsaka ferðir þeirra til Íslands í sögulegu og samtímalegu samhengi.
Spurningaskráin er hluti af þriggja ára rannsóknarverkefni, Ísbirnir á villigötum, sem unnið er í samstarfi íslenskra og alþjóðlegra háskóla og safna.
Tengsl dýra, fólks og umhverfis
Kristinn Schram þjóðfræðingur, sem vinnur að verkefninu ásamt fleirum, segir að með því að safna minningum fólks fáist innsýn í líf þess og reynslu.
„Það er mikilvægt að fá innsýn í reynslu þeirra sem með einhverjum hætti lifa í návist hvítabjarnarins. Sú þekking á að nokkru leyti rætur aftur í aldir með sagnaarfi sem ríkur er af bjarndýrum sem tignargjöfum og andvaragestum. Oft vísa þessar sögur til óljósra marka bjarna og manna og þá ekki síst berserkja. Samtímafrásagnir geta líka varpað ljósi á fjölþætt tengsl dýra, fólks og umhverfis á tímum loftslagshlýnunar, bráðnandi íss og hækkandi sjávarmáls.“
Ísbirnir á villigötum
Spurningaskráin er hluti af þriggja ára rannsóknarverkefni, Ísbirnir á villigötum, sem unnið er í samstarfi íslenskra og alþjóðlegra háskóla og safna. Það er styrkt af Rannsóknasjóði Rannís og leitt af myndlistarfólkinu Bryndísi Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson í samstarfi við Kristin og Æsu Sigurjónsdóttur listfræðing.
„Auk þjóðfræðilegra rannsókna er unnið út frá sjónarhorni samtímalista og listfræði,“ segir Kristinn, „þannig að í verkefninu verða mörk fólks og dýra, menningar og raunveruleika skoðuð, ásamt samverkandi áhrifum loftslagsbreytinga á fólksflutninga og umhverfisrof sem því miður færist í aukana.“
Frásagnir varðveittar til framtíðar
Spurningaskránni er svarað á vefsíðu menningarsögulega gagnasafnsins Sarpur, www.sarpur.is.
Þær frásagnir sem berast verða varðveittar um ókominn tíma og gerðar öllum aðgengilegar, nema annað sé tekið fram. Nöfn heimildarmanna birtast ekki.