Nicole Keller.
Nicole Keller.
Mynd / Anna Sigríður Einarsdóttir
Fréttir 28. september 2026

Hægur samdráttur og langt frá markmiðum

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Tæplega fjögurra prósenta heildarsamdráttur varð í heildarlosun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi á milli ára. Miðað við framtíðarhorfur náum við einungis um 20% samdrætti í samfélagslosun til 2030 sem er um helmingur samdráttarkröfu í þessum flokki fyrir Ísland samkvæmt skuldbindingum gagnvart ESB.

Heildarlosun nær yfir alla losun sem á sér stað á Íslandi. Millilandaflug og -siglingar eru undanskilin. Heildarlosuninni má svo að mestu leyti skipta niður á þrjá skuldbindingaflokka; losun vegna staðbundins iðnaðar, sem fellur undir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, og flokka landnotkunar, og samfélagslosunar, sem eru á beinni ábyrgð stjórnvalda. Bráðabirgðaniðurstöður voru kynntar á fundi sem Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra bauð til á þriðjudaginn.

Hlutfall landbúnaðar 24% í samfélagslosun

Þá fór Nicole Keller, teymisstjóri teymis losunarbókhalds hjá Umhverfis- og orkustofnun, yfir losunartölurnar í hverjum flokki og stöðu Íslands gagnvart loftslagsskuldbindingum. Þar kom fram að í landnotkun varð 2,2% samdráttur, 11% samdráttur frá ETS-kerfinu (staðbundinn iðnaður) og samfélagslosun minnkaði um 2,7%. Samfélagslosun ríkja fellur undir svokallaða beina ábyrgð ríkja samkvæmt reglugerð ESB um sameiginlega ábyrgð. Í þeim flokki er landbúnaður einn undirflokka og þar mældist samdráttur í losun 0,063%, en hlutfall landbúnaðar í samfélagslosun er um 24%.

Jóhann Páll kynnti meðal annars stöðu loftslagsaðgerða og forgangsverkefna, umbætur í stjórnsýslu málaflokksins og útgáfu skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða.

Sveigjanleikinn kostar sitt

„Miðað við þá framvindu sem við sjáum núna munum við ná um 20% samdrætti í samfélagslosun sem er á beinni ábyrgð stjórnvalda til 2030, en markmiðið verður að öllum líkindum 41%,“ segir Nicole spurð um hvernig gangi að fylgja áætlunum.

„Uppgjörsreglurnar eru þó flóknar og ákveðinn sveigjanleiki er til staðar sem gerir okkur kleift að ná skuldbindingunum fyrir fyrra uppgjörstímabil bókhaldsins 2021–2025 – og þá má, upp að vissu marki, nota losunarheimildir úr hinum flokkunum; ETSflokknum (viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir) og landnotkunarflokknum.

Sveigjanleikinn kostar auðvitað sitt, því um leið og við nýtum þær heimildir verðum við af ákveðnum tekjum sem við gætum annars haft af þeim – sem við gætum til dæmis nýtt til að fjármagna beinar loftslagsaðgerðir.“

Ísland þarf að gera enn betur

Nicole segir að fyrir seinna tímabilið 2026–2030 sýni núverandi framreikningar að losun verði 1,7 milljónum tonna koltvísýringsígilda (CO2-íg) umfram heimildir í samfélagslosun, þrátt fyrir nýtingu á sveigjanleika úr ETS-flokknum til fulls upp á alls rúmlega 1,2 milljónir tonna CO2 -íg fyrir 2021-2030. „En þessar tölur eru til viðmiðunar þar sem skuldbindingar til 2030 hafa ekki verið endanlega staðfestar, og því einnig óljóst hvort sveigjanleiki vegna landnotkunarflokks verði í boði á seinna uppgjörstímabilinu.

Ljóst er að þrátt fyrir sveigjanleikana þá mun Ísland þurfa að gera enn betur fram að 2030 til að ná skuldbindingunum sínum og til að koma í veg fyrir að þurfa að kaupa losunarheimildir frá öðrum ríkjum. Þar er samfélagslosunin stærsta áskorunin. En ef allt gengur vel í landnotkunarflokki varðandi endurheimt votlendis og vistkerfa, þá ætti útlit fyrir þann flokk að vera gott sem hjálpar okkur við að laga stöðuna í samfélagslosuninni.

Vinna stendur yfir um þessar mundir við uppfærslu á skuldbindingum í samfélagslosun og í landnotkun, þar sem innleiðingarviðræður eru í gangi við ESB,“ segir Nicole.

Skylt efni: losunarbókhald

Geymdu korn í jarðgöngum
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu bygg...

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Fréttir 22. október 2026

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð

Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjar...

Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á a...

Álftir valda tjóni árlega
Fréttir 22. október 2026

Álftir valda tjóni árlega

Álftir herjar á akra og valda kornbændum tjóni ár hvert. Bændur segja ástandið v...

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...