Kirkjan á Eyrarbakka, byggð 1890, var friðuð 1. janúar 1990.
Kirkjan á Eyrarbakka, byggð 1890, var friðuð 1. janúar 1990.
Mynd / mhh
Fréttir 29. september 2026

Sóknargjöld hækkuð um 200 milljónir króna

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Ein af þeim tillögum sem lögð er fram í tengslum við fjárlagafrumvarp næsta árs er að sóknargjöld verði hækkuð um 200 milljónir króna. Einnig stendur til að veita 75 milljónum króna aukalega til Húsfriðunarsjóðs til að standa straum af viðhaldsþörf á friðuðum kirkjubyggingum um land allt.

Mikið ákall hefur verið síðustu ár frá kirkjunnar fólki um hækkun sóknargjalda og er nú líklega að raun- gerast. „Þetta er mikið fagnaðarefni. Sóknargjöld standa undir mikilvægu starfi trúfélaga um land allt og lengi hefur verið kallað eftir því að fjármögnunin verði styrkt og gerð fyrirsjáanlegri,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Hún segir jafnframt að tillögurnar byggi á vinnu starfshóps sem skipaður var árið 2024 af þáverandi dómsmálaráðherra um endurskoðun fyrirkomulags sóknargjalda.

1.270 krónur á mann

Verði hækkunin að veruleika er gert ráð fyrir að fjárhæð sóknargjalds hækki úr 1.221 krónu í 1.270 krónur fyrir hvern einstakling á mánuði. Ný upphæð á að uppfærast ár hvert í samræmi við almennar verðlagsforsendur fjárlaga og fjölda greiðenda sóknargjalda í lok næstliðins árs. Breytingin á þannig að stuðla að fyrirsjáanlegri fjármögnun til framtíðar.

Friðaðar kirkjur

Víða um land er töluverð viðhaldsþörf á friðuðum kirkjum sem gegna mikilvægu hlutverki í menningar- og byggingarsögu landsins. Starfshópurinn lagði því til að Húsfriðunarsjóður yrði efldur með varanlegu viðbótarfjármagni sem eyrnamerkt yrði kirkjubyggingum og er í fjárlagafrumvarpinu 2027 gert ráð fyrir 75 milljóna króna viðbótarframlagi.  

Skylt efni: Sóknargjöld

Geymdu korn í jarðgöngum
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu bygg...

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Fréttir 22. október 2026

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð

Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjar...

Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á a...

Álftir valda tjóni árlega
Fréttir 22. október 2026

Álftir valda tjóni árlega

Álftir herjar á akra og valda kornbændum tjóni ár hvert. Bændur segja ástandið v...

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...