Vetrartrefill
Uppskriftin er í einni stærð en auðvelt er að breyta bæði breidd og lengd
Efni:
Einn þráður Þingborgarlopi í sauðalit og einn þráður Hörpugull, sem er litaður Þingborgarlopi. Eins má nota Slettuskjótt sem er litaður tvöfaldur Þingborgarlopi. Hægt er að nota nánast hvað sem er sem er svipað að grófleika og tvöfaldur lopi, t.d. einn þráð lopa og einn þráð Love Story eða Gilitrutt frá Helene Magnússon, Lambaband frá Gilhaga og einn þráð af Love Story. Jurtalitað Dóruband (Þingborgarband) og einn þráður lopi er líka frábært saman. Möguleikarnir eru óendanlegir, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.
Tillögur:
100 g Þingborgarlopi og 100 g (2 dokkur) Hörpugull.
200 g (4 dokkur) Slettuskjótt
100 g plötulopi og 50 g (2 dokkur) Love story. Þessi blanda er mjög fíngerð og létt.
100 g plötulopi og 100 g (4 dokkur) Gilitrutt
100 g plötulopi, 100 g (2 hespur) Dóruband
Svo er hægt að nýta afganga sem til eru og hægt að blanda ýmsu saman og útkoman getur orðið mjög skemmtileg.
Áhöld:
6 mm prjónar, þægilegast er að prjóna þennan trefil á 80 sm hringprjón, en líka hægt að nota bandprjóna.
Aðferð:
Trefillinn er prjónaður með garðaprjóni fram og til baka. Kantur er tveggja lykkju snúrukantur (I-Cord) og er gerður svona: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á prjóninum, takið bandið fram fyrir prjóninn og takið þessar tvær lykkjur sem eftir voru óprjónaðar á hægri prjóninn.
Þegar prjónað er til baka er bandið fyrir aftan þessar tvær lykkjur. Gerið eins þegar komið er á hinn endann. Myndbönd á YouTube sýna þetta mjög vel.
Trefillinn:
Fitjið upp 50 lykkjur. Prjónið 2 lykkjur, sláið upp á prjóninn og prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið tvær lykkjur saman og gerið snúrukant á endann eins og lýst er að ofan. Prjónið til baka þar til 2 lykkjur eru eftir og gerið snúrukant þar einnig. Endurtakið þessar umferðir þar til trefillinn er orðinn nógur langur og fellið þá af, en hann má alveg ná 150 sm svo hægt sé að vefja honum um hálsinn á sér.