Kjúklingur, kalkúnn og súkkulaði
Höfundur: Bjarni Gunnar Kristinsson
Kjúklingur er frábær fæða enda fara vinsældir hans sívaxandi. Kjúklingaréttir passa vel fyrir lífsstíl margra í dag, þar sem maturinn þarf að vera fljótlegur og hollur.
Sérstaklega eru þeir hentugir þegar nýja haustgrænmetið er komið í verslanir og þá er lítið mál að slá upp hversdagsveislu.
Ofnbökuð gljáð kjúklingalæri með nýjum hráum gulrótum
- 600 g kjúklingalæri
- 100 g nýjar gulrætur beint úr
- garðinum eða frá bónda
- salt og pipar
Aðferð
Steikið lærin í ofni við 160–170 gráður í 35–40 mínútur eða grillið ef það er enn við höndina.
Gott er að bera lærin fram með fersku salati og steiktum kartöflubátum – og hráum gulrótum sem gott er að dýfa í sýrðan rjóma með kryddjurtum með ögn af sítrónusafa. Líka hægt að nota sem sósu með kjúklingnum.
Kalkúnabringur með maltgljáa og rósmarin
Ef margir eru í mat ætti að vera auðvelt að hægelda kalkúnabringu og svo brúna á grilli eða pönnu.
- 1 heil kalkúnabringa
- 1 lítil maltdós
- 1 hvítlaukur
- 1 grein rósmarín
- 20 g púðursykur
- 20 g sinnep
- olía
- salt og pipar
Aðferð
Blandið kryddleginum saman í poka; olíu, söxuðum hvítlauk, púðursykri, salti, pipar og sinnepi. Setjið til hliðar.
Færið kalkún í ofnfast fat og bakið við vægan hita þar til kjötmælir nær 65 gráðum, brúnið svo á pönnu eða undir grilli í ofni. Ef notað er grill skal grilla við vægan hita í um hálftíma eða þar til kalkúnninn er fulleldaður.
Penslið reglulega yfir kalkúninn með kryddleginum.
Gott getur verið að krydda aðeins betur með salti og pipar.
Ef mikill safi lekur niður er gott að setja álpappír undir kalkúninn svo kvikni ekki í veislunni.
Súkkulaðikaka í formi
- 200 g dökkt hágæðasúkkulaði
- 1 egg
- 3 eggja- rauður
- 175 g smjör
- 40 g sykur
Saxið súkkulaðið og hitið við vægan hita í örbylgjuofni eða yfir vatnsbaði. Bætið bræddu smjöri við og hrærið saman við einu eggi og svo einni rauðu ásamt sykri.
Bakið til dæmis í sílikonformi eða formi með smjörpappír við 180 gráður í 6–7 mínútur.
Gott að reiða fram með súkkulaðisósu og jafnvel vanilluís og íslenskum berjum eða þeyttum rjóma (stundum þarf að kæla súkkulaðið til að ná því úr forminu).