Tvær að norðan á hvíta tjaldinu
Menning 20. október 2026

Tvær að norðan á hvíta tjaldinu

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Á nýliðinni kvikmyndahátíð RIFF, Reykjavík International Film Festival, voru tvær heimildarmyndir sem gerðu fólk og atburði á Norðurlandi vestra að viðfangsefni sínu. Myndirnar Ævintýri á hestbaki og Vegur 75 um Tröllaskarð – Álög Grímu voru sýndar í Háskólabíó á tvöfaldri sýningu (e. double-feature) sem lauk með ávarpi leikstjórans, Árna Gunnarssonar.

Árni Gunnarsson er kvikmyndagerðarmaður sem hefur bæði sinnt leikstjórn, framleiðslu, kvikmyndatöku og handritaskrifum. Tvöfalda kvikmyndasýningin á myndum Árna hófst klukkan 11 á sunnudagsmorgni og hægt var að festa kaup á kaffi og kleinu í sjoppunni. Var það einkar viðeigandi að dýfa kleinu í kaffi í myrkum salnum á meðan að drónaskot af íslenskri fjallasýn blöstu við.

Ævintýri á hestbaki

Sýningin hófst á Ævintýri á hestbaki sem fylgir ungum knapa og hesti frá þjálfun og á heimsmeistaramót. Viðfangsefni myndarinnar er Þórgunnur Þórarinsdóttir, knapi í Skagafirði og frænka leikstjórans, og hestur hennar, Djarfur frá Flatatungu. Saman komast þau á heimsmeistaramót íslenska hestsins í Sviss árið 2025 þar sem leiðir þurfa svo að skiljast.

Myndin fylgir Þórgunni frá því að hún er fimmtán ára þar til hún verður tvítug. Myndin er því einnig ákveðin uppvaxtarsaga metnaðarfullrar stúlku og greinilegt er að hestamennska á hug hennar allan. Viðtöl við fjölskylduna staðfesta þá tilfinningu í bland við gamalt myndefni af Þórgunni sem litlu barni hugföngnu af hestunum. Þetta sést einnig í samskiptum Þórgunnar við systur sína sem er einnig í hestamennsku en þær eiga fallegt samband sem systur en einnig sem ungir fagmannlegir knapar. Þær eru bæði öruggar og fróðar og styðja við hvor aðra. Þessi samskipti og önnur við fjölskylduna, líkt og þegar Þórgunnur er pirruð eftir keppni sem gekk ekki nógu vel og er aðeins örg við föður sinn, ljá myndinni ákveðinn áreiðanleika. Þarna er ekki bara glansmynd heldur sönn reynsla af því að gera sitt besta og takast ekki alltaf upp.

Samband knapa og hests

Þó að keppnin og möguleikinn á þátttöku í heimsmeistaramóti sé að stórum hluta drifkraftur myndarinnar, þá er samband manneskju og hests einnig þungamiðja. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Árni tekur sér það efni fyrir hendur en 2009 gerði hann myndina Kraftur: síðasti spretturinn sem fjallar um síðasta sprett knapa og hests á keppnisvellinum.

Í Ævintýri á hestbaki fáum við að sjá senur úr útreiðatúrum, sjáum knapa hlúa að hesti sínum, rabba við og faðma hann. Þórgunnur segir okkur það einnig beint hvernig sambandið þróast, hvernig þau stilla sig af og hvenær það gengur sem best. Vegna þess hve mikil áhersla er á sambandið sjálft er það synd að fá ekki hina eiginlegu kveðjustund í lok myndarinnar. Íslenskir hestar sem fara erlendis mega aldrei koma aftur til Íslands þar sem innflutningur hesta er bannaður til að vernda íslenska hestastofninn sem er lítill og einangraður. Því er það hluti af ákvörðun knapa sem ákveður að fara á heimsmeistaramót að segja skilið við hest sinn á erlendri grund. Við fáum að vita að Djarfur hefur verið seldur til 16 ára þýsks knapa sem mun taka við honum að móti loknu og við heyrum tilfinningar Þórgunnar sem er ánægð með mótið en finnst erfitt að kveðja. Mögulega var það af tilliti við knapann sem áhorfandinn fær ekki að sjá kveðjustundina en hefði það gert enda kvikmyndarinnar sterkari.

Vegur 75 og álög Grímu

Hin kvikmynd Árna, Vegur 75 um Tröllaskarð – Álög Grímu, tekur fyrir álög sem eru á stuttum vegarkafla um Tröllaskarð. Myndin er byggð upp á viðtölum við fólk í sveitinni og við fólk sem hefur unnið við eða komið að vegagerð á svæðinu. Þá var einnig notast við eldri upptökur sem virkar vel til að sýna hve lengi álög Grímu hafa verið til umræðu.

Gríma er kona sem bjó við Tröllaskarð í Hegranesi einhvern tímann á 15. eða 16. öld og hafði átt í deilum við prest á svæðinu um beitiland sem leiddi að lokum til þess að hún lagði álög á svæðið. Árið 1978 leitar Vegagerðin til miðils til þess að reyna að skilja ófarir sínar í framkvæmdum á svæðinu og kemst í samband við Grímu. Gegn því að vegstæðinu um Tröllaskarð yrði breytt yrðu engin alvarleg slys á svæðinu.

Aftur er samband manna og náttúrunnar í fyrirrúmi en að þessu sinni á milli manneskjunnar og þess óséða í náttúrunni, bæði huldufólks og vætta. Í myndinni er áherslan lögð á frásagnir fólks sem virkar vel til þess að falla ekki í gryfju klisjukenndra lýsinga á fallega hávaxna huldufólkinu sem túristum er gjarnan seld. Í staðinn eru flókin sambönd fólks við umhverfið í fyrirrúmi, óútskýrðar upplifanir, draumar og ákveðin náttúrutrú. Myndin er fróðleg og vel unnin þar sem bæði er rætt við eldra og yngra fólk sem segir sína upplifun af svæðinu og tengingu við álög Grímu og saga bæði Grímu og huldufólks á svæðinu tekin fyrir.

Þessar myndir áttu báðar vel við flokkinn Ísland við sjónarrönd á RIFF þar sem þær voru báðar kirfilega staðsettar á Norðvesturlandi og myndu henta vel til landkynningar. Þær náðu að fjalla um séríslensk viðfangsefni án þess þó að vera búnar til fyrir ferðamenn og eru fróðlegar fyrir alla sem vilja

Skylt efni: RIFF

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði
Líf og starf 26. október 2026

Lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði

Hér er lausn vísnagátunnar úr 19. tölublaði Bændablaðsins sem kom út 22. október...

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 22. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Vogin upplifir hópverkefni ganga vel og öll samskipti, líka sem viðkoma ástinni ...

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?
Líf og starf 21. október 2026

Ætlar þú að vera umvafin hlýju í haust?

Nú í blessuðu haustrokinu vefja margir sig treflum – eðlilega og umhugsunarlaust...

Landslið og skólalið
Líf og starf 21. október 2026

Landslið og skólalið

Í síðustu viku tók Vesturbæjarskóli þátt í Evrópuundanrásum heimsmeistaramótsins...

Útspil fyrir lengra komna
Líf og starf 21. október 2026

Útspil fyrir lengra komna

Það er komið að útspilsþraut fyrir lesendur Bændablaðsins. Og áður en lengra er ...

Blái hnötturinn á svið
Líf og starf 21. október 2026

Blái hnötturinn á svið

Leikverkið stórfenglega, Blái hnötturinn, fór fyrst á svið árið 2001, en það er ...

Sveppir voru það, heillin ...
Líf og starf 21. október 2026

Sveppir voru það, heillin ...

Sveppatínsla hefur aldrei verið vinsælli á Íslandi en einmitt nú á haustmánuðum,...

Stór byggð fuglahræða við Kópasker
Líf og starf 21. október 2026

Stór byggð fuglahræða við Kópasker

Í æðarvarpinu á Snartarstöðum 2 við Kópasker eru tugir skrautlegra fuglahræða se...