Þrír milljarðar til úrbóta í frárennslismálum sveitarfélaga
Fráveitumál eru afar mikilvæg umhverfismál en aukin hreinsun skólps dregur úr mengun vatns og sjávar. Ég hef í ráðherratíð minni lagt ríka áherslu á að gera gangskör í þessum málum. Í sáttmála ríkisstjórnarinnar frá haustinu 2017 kemur fram að gera þurfi átak í fráveitumálum í samstarfi ríkis og sveitarfélaga. Úttekt Umhverfisstofnunar frá sama ári...