Þangsoð og japanskt lambakarrí
Á dögunum stóð Hótel- og matvælaskólinn í Kópavogi fyrir nýstárlegum viðburði í samvinnu við sendiráð Japans á Íslandi, þegar nemendur á sérstöku námskeiði við skólann voru kynntir fyrir nokkrum grundvallarþáttum í japanskri matargerð – með sérstaka áherslu á lambakjöt sem hráefni.