Ull úr Uppspuna notuð til landgræðslu
Hulda Brynjólfsdóttir, sauðfjárbóndi í Lækjartúni á austurbökkum Þjórsár, á og rekur smáspunaverksmiðjuna Uppspuna. Í byrjun ágústmánaðar stóð hún fyrir nokkuð nýstárlegri landgræðsluferð þegar afgangsull frá verksmiðjunni var dreift á malarkamb nálægt Heklu í landgræðsluskyni.