Hlaðvarp Landgræðslunnar - #5 – Árni Bragason - 20. maí. 2020
Árni Bragason landgræðslustjóri er viðmælandi í fimmta hlaðvarpsþætti Landgræðslunnar. Í viðtalinu ræðir Árni m.a. um það hvers vegna Ísland er eitt vistfræðilega verst farna land Evrópu. Þá talar Árni um loftslagsmarkmiðin og jarðvegseyðinguna sem er alvarlegasta ógnin sem blasir við mannkyni, en uppskerutap vegna hennar er gríðarlegt. Hlutverk sveitarfélaga kemur til umræðu og breytt landnotkun. Í framhaldi af því fjallar Árni um friðun lands og þátt landeigenda/bænda. “Við eigum bara eina jörð og ef við umgöngumst hana ekki með sjálfbærum hætti fer illa. Það er enginn sem getur leyft sér að vera “stikkfrí” í þessu máli,” segir Árni meðal annars.
Spyrill í þættinum er Áskell Þórisson.
Fleiri þættir
Hlaðvarp Landgræðslunnar - #8 - Söfnun birkifræs
Að þessu sinni ræðir Áskell Þórisson við þau Rannveigu Magnúsdóttur, sérfræðing og starfsmann Landve...
Hlaðvarp Landgræðslunnar - #7 - Árni Bragason og ný landgræðsluáætlun
Nú liggja fyrir drög að nýrri landgræðsluáætlun. Meginmarkmið landgræðsluáætlunar lúta að vernd og e...
Hlaðvarp Landgræðslunnar - #6 - Bryndís Marteinsdóttir og Grólind - 25. maí 2020
Bryndís Marteinsdóttir verkefnastjóri er viðmælandi Áskels Þórissonar í hlaðvarpsþætti Landgræðslunn...
Hlaðvarp Landgræðslunnar - #4 - Tryggvi Felixson hjá Landvernd - 6. maí. 2020
Tryggvi Felixson, formaður stjórnar Landverndar, er gestur Áskels Þórissonar í hlaðvarpsþætti Landgr...
Hlaðvarp Landgræðslunnar - #3 - Guðrún Schmidt fræðslufulltrúi - 21. feb. 2020
Gestur í hlaðvarpi Landgræðslunnar að þessu sinni er Guðrún Schmidt fræðslufulltrúi Landgræðslunna...