Konur í nýsköpun - kynning
Alma Dóra Ríkarðsdóttir ræðir við konur í nýsköpun um nýsköpunarumhverfið á Íslandi, jöfn tækifæri, fjölbreytni og valdeflingu kvenna til nýsköpunar. Verkefnið er hýst af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Sumarið 2020 fékk Alma Dóra Ríkarðsdóttir (að eigin sögn) besta sumarstarf sem nokkur viðskiptafræðingur og meistaranemi í kynjafræði gæti óskað sér. Á styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna rannsakaði hún stöðu og valdeflingu kvenna til nýsköpunar hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Ásamt því að uppfæra kynjuðu tölfræðina hjá nýsköpunarsjóðum ráðuneytisins tók hún viðtöl við áhrifakonur úr nýsköpunarumhverfinu á Íslandi. Í þessu hlaðvarpi verður hægt að hlusta á þessi viðtöl og fræðast um hvað er að gerast í nýsköpun á Íslandi með jafnréttissjónarmið að leiðarljósi.
Fleiri þættir
Konur í nýsköpun #16 – Kolbrún Bjarmundsdóttir - 11. mars 2021
Tækniþróunarsjóður er stærsti nýsköpunarsjóðurinn á vegum atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins se...
Konur í nýsköpun #15 – Ásta Kristín - 15. febrúar 2021
Gestur Ölmu Dóru í þætti dagsins er Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðakla...
Konur í nýsköpun #14 – Hulda Birna - 28. janúar 2021
Hulda Birna Baldursdóttir Kjærnested er ein þeirra fræknu verkefnastjóra sem hafa veitt frumkvöðlum...
Konur í nýsköpun #13 – Ólöf Vigdís - 19. janúar 2021
Gestur Ölmu Dóru í þætti dagsins er Ólöf Vigdís Ragnarsdóttir, verkefnastjóri nýsköpunar hjá Háskóla...
Konur í nýsköpun #12 – Birna Bragadóttir - 12. janúar 2021
Gestur Ölmu Dóru í tólfta þætti af Konum í nýsköpun er Birna Bragadóttir, stjórnarformaður Hönnunars...
Konur í nýsköpun #11 – Andrea og Kristjana - 13. nóvember 2020
Í þættinum í dag ræðir Alma Dóra við Andreu Gunnarsdóttur og Kristjönu Björk Barðdal, stjórnarkonur...
Konur í nýsköpun #10 – Stefanía Bjarney - 9. nóvember 2020
Í þættinum ræðir Alma Dóra við eina af sínum helstu fyrirmyndum úr nýsköpunarheiminum, Stefaníu Bjar...
Konur í nýsköpun #9 – Salome - 26. október 2020
Í þættinum ræðir Alma Dóra við Salóme Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandic Startups. Hún sagði...
Konur í nýsköpun #8 – Þorbjörg Helga - 20. október 2020
Í þætti dagsins kemur hún Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Kara Connect, o...
Konur í nýsköpun #7 – Huld - 13. október 2020
Huld Magnúsdóttir hefur átt í áralöngu sambandi við nýsköpun og starfar nú sem framkvæmdastjóri Nýsk...
Konur í nýsköpun #6 – Edda og Melkorka - 9. október 2020
Edda og Melkorka eru stofnendur Nýsköpunarvikunnar sem haldin er í fyrsta skiptið haustið 2020. Þær...
Konur í nýsköpun #5 – Guðrún Tinna - 6. október 2020
Í þættinum í dag ræðir Alma Dóra við Guðrúnu Tinnu Ólafsdóttur, stjórnarformann Svanna lánasjóðs. Sv...