Frá Sogni, þegar Jóhann Páll Jóhannsson, setti formlegt átak um endurheimt votlendis af stað.
Frá Sogni, þegar Jóhann Páll Jóhannsson, setti formlegt átak um endurheimt votlendis af stað.
Mynd / Hreinn Óskarsson
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Formlega sett af stað á Sogni í Ölfusi

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn þegar Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tók fyrstu skóflustunguna á Sogni í Ölfusi.

Í verkefninu felst að 225 hektarar votlendis verða endurheimtir á fimm ríkisjörðum nú í haust, sem jafngildir 315 fótboltavöllum, og um 23 kílómetrum af framræsluskurðum lokað. Gert er ráð fyrir að stærra svæði af framræstu votlendi verði endurheimt á þessu ári og því næsta en endurheimt hefur verið á síðustu 30 árum.

Eykur seiglu vistkerfa

Í tilkynningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins kemur fram að endurheimt votlendis sé á meðal forgangsverkefna ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum sem kynnt voru í fyrra. „Síðan þá hefur framkvæmdaundirbúningur staðið yfir með kortlagningu, mælingum og í kjölfarið samráði við sveitarfélög og landeigendur nærliggjandi jarða auk leyfisveitingaferla. Í dag hófust framkvæmdir að Sogni, en þar verða um 25 hektarar votlendis endurheimtir og um fjórum kílómetrum af framræsluskurðum lokað.

Endurheimt votlendis dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi og getur jafnframt bætt vatnsmiðlun, aukið seiglu vistkerfa gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga og stutt við líffræðilega fjölbreytni,“ segir í tilkynningunni.

Ríkisjarðir einar duga ekki

Í ávarpi ráðherra á Sogni kom fram að það væri vel við hæfi að byrja á þessu verkefni á þessari jörð. Þar væri þegar til mikilvæg reynsla af endurheimt votlendis. „Hér hófst rannsóknar- og vöktunarverkefni árið 2019 þar sem meðal annars var fylgst með grunnvatnsstöðu, losun gróðurhúsalofttegunda og því hvernig gróður tók við sér. Niðurstöðurnar sýndu hærri grunnvatnsstöðu og minni losun koldíoxíðs eftir endurheimt,“ sagði ráðherra.

„Skurðirnir sem við sjáum hér segja líka ákveðna sögu sem við skulum bera virðingu fyrir. Þeir voru grafnir á öðrum tíma, við aðrar aðstæður og með þá þekkingu sem fólk hafði þá. Markmiðið var að nýta landið betur og búa í haginn fyrir framtíðina. Við vitum hins vegar meira í dag en við vissum þá. Þegar votlendi er framræst lækkar vatnsstaðan. Lífrænn jarðvegur, sem hefur safnast upp á löngum tíma, tekur að brotna niður og kolefnið sem varðveitt hefur verið í jarðveginum losnar út í andrúmsloftið. Með því að færa vatnsstöðuna nær fyrra horfi hægjum við á þessu niðurbroti og drögum úr losun.

[…] En ríkisjarðirnar einar duga auðvitað ekki. Til að ná árangri á landsvísu þurfum við samstarf við bændur og aðra landeigendur. Það samstarf þarf að byggja á trausti, staðþekkingu og raunhæfum og fyrirsjáanlegum leiðum til stuðnings. Þess vegna vinnum við líka að fjárhagslegum hvötum fyrir náttúrumiðaðar aðgerðir á einkalöndum, þannig að landeigendur geti verndað og endurheimt vistkerfi samhliða sjálfbærri nýtingu lands,“ sagði ráðherra enn fremur.

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...