Djúp lægð nálgast landið
Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir
Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, varar við djúpri lægð sem nálgast landið úr austri. Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula viðvörun og verður hún í gildi frá klukkan sex síðdegis á miðvikudaginn á Vestfjörðum, Ströndum og norðurlandi vestra.
Í færslu á samfélagsmiðlum segir hann að í nýjustu spá Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar frá í morgun megi sjá feril lægðar frá austanverðum Bandaríkjunum í sveig norðuastur um Atlantshafið með stefnu á Ísland. Dýpkun lægðarinnar sé meiri en áður var gert ráð fyrir.
„Síðdegis á miðvikudag má þannig sjá töluna 936 hPa skammt undan Hornafirði.“ Svo djúpar lægðir séu fáséðar hér á landi í október og aðeins einu sinni sé vitað til þess að loftvog hafi fallið niður fyrir 940 hPa í mælingu á þessum árstíma og það hafi gerst 19. október árið 1963. „Veðrið þá var víst ógurlegt og olli sjávarflóðum.“
„Sé svo sem hvað mestu veldur nú, er að sjálf lægðin "gleypi" aðra minni sem verður til þess að spinnið og hringhreyfingin magnast enn frekar upp. Þar með ákefð dýpkunarinnar. Sjálf dýpkunin reiknast 44 hPa frá kl. 12 á morgun, þriðjudag til kl. 12 á miðvikudag.
Í keyrslum í gær ruddi aðallægðin þeirri minni einfaldlega á undan sér og aðgengileg lægðaorkan nýttist ekki til fulls.“
Einar segir að fylgjast þurfi grannt með þessari þróun næstu tvo til þrjá sólarhringa. Mjög djúpar lægðir eins og sú sem nú sé í pípunum valdi langoftast óskunda hér á landi og verulegum vandræðum og eingatjóni. „En það er enn langur vegur frá Atlanta til Akureyrar!“
Gular og appelsínugular veðurviðvaranir
Fyrripart dags á miðvikudag má búast við austan og norðaustan hvassviðri eða stormi á landinu með talsverðri eða mikilli rigningu á láglendi í flestum landshlutum, en slyddu eða snjókomu til fjalla.
Með norðanáttinni berst kaldara loft úr norðri og undir kvöld og á miðvikudagskvöldið má gera ráð fyrir að snælínan færist niður undir sjávarmál á Vestfjörðum og Norðurlandi-Vestra. Þar sem saman fer snjókoma og stormur, þar er stórhríð og því hafa appelsínugular viðvaranir verið gefnar út á þessum svæðum þar sem veðrið verður verst. Í öðrum landshlutum eru viðvaranirnar gular.
Gefnar hafa verið út viðvaranir fyrir stóran hluta landsins. Verst verður veðrið á Vestfjörðum, Ströndum og norðurlandi vestra og er appelsínugul viðvörun í gildi frá klukkan 18 á miðvikudag til klukkan 6 á fimmtudagsmorgun. Búast má við stórhríð og hvassviðri eða stormi.
Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suðurland, Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði, Suðausturland, Miðhálendi, Strandir og norðurland vestra og munu þær viðvaranir taka gildi klukkan sex að morgni miðvikudagsins.
Fréttin hefur verið uppfærð
