Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Tilboðsmarkaður með mjólkurkvóta haldinn 2. nóvember
Mynd / Bbl
Fréttir 28. september 2020

Tilboðsmarkaður með mjólkurkvóta haldinn 2. nóvember

Höfundur: smh

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur tilkynnt um næsta tilboðsmarkað fyrir greiðslumark mjólkur og verður hann haldinn þann 2. nóvember næstkomandi.

Reglur kveða á um að hægt sé að óska eftir 50 þúsund lítrum til kaups að hámarki á hverjum slíkum markaði, eða alls 150 þúsund lítrum árlega. „Þá má hlutdeild framleiðanda eða framleiðenda sem eru í eigu einstakra aðila, einstaklinga, lögaðila eða tengdra aðila ekki nema hærra hlutfalli en 1,2% af árlegu heildargreiðslumarki mjólkur,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Sem fyrr eiga nýliðar forkaupsrétt á fimm prósentum af því greiðslumarki sem boðið er til sölu á hverjum markaði, svo lengi sem þeir uppfylla skilyrði reglugerðarinnar um gilt kauptilboð og að því gefnu að þeir bjóði verð sem er jafnt eða hærra en jafnvægisverð.

Eitt tilboð fyrir hvert lögbýli

„Einungis er heimilt að skila inn einu tilboði um kaup eða sölu fyrir hvert lögbýli og af sama aðila eða tengdum aðila. Tilboðsgjöfum er skylt að gæta að því að einungis eitt tilboð komi frá aðilum sem teljast tengdir. Óheimilt er að bjóða fram mismunandi verð í sama tilboði. Óheimilt er aðilum að gefa upp magn og verð sem tiltekið er í tilboðunum, sem opnuð eru á markaðsdegi. Sé það gert skal þeim tilboðum vikið til hliðar,“ segir í tilkynningunni.

Á síðasta tilboðsmarkaði, þann 1. september síðastliðin, bárust 13 gild tilboð um sölu á greiðslumarki mjólkur, en gild tilboð um kaup voru 209. Jafnvægisverð fyrir hvern lítra mjólkur var 249 krónur – sem er ákvarðað hámarksverð. Þá bárust 12 gild kauptilboð frá nýliðum.

Lokað fyrir tilboð á miðnætti 10. október

Kaupendum er skylt að inna af hendi staðgreiðslu fyrir andvirði greiðslumarksins fyrsta virka dag næsta mánaðar eftir opnun tilboða. Heimilt er að krefjast frekari upplýsinga og gagna ef tilefni þykir til þess. Þá er heimilt að senda kröfu til innheimtu fyrir kauptilboði ef hún er ekki greidd á gjalddaga á kostnað tilboðsgjafa. Einnig er heimilt að leggja fram með kauptilboði eða fyrir upphaf markaðsdags staðgreiðslu fyrir andvirði greiðslumarksins. 

Tilboðum um kaup og sölu greiðslumarks skal skila rafrænt á afurd.is, en opnað verður fyrir tilboð þann 28. september 2020. Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti 10. október næstkomandi.