Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Bjartsýnir geitabændur
Bóndinn 17. maí 2024

Bjartsýnir geitabændur

Nú kynnast lesendur búskapnum á Gilhaga í Öxarfirði, en við gefum Brynjari Þór Vigfússyni orðið.

Við Guðrún Lilja fluttum í Gilhaga 2018 með stelpurnar okkar tvær og eignuðumst síðan yngsta barnið okkar, soninn, ári síðar. Við kaupum jörðina af afa mínum sem hafði byggt hana upp sem sauðfjár- og skógræktarjörð frá árinu 1960, en fjölskylda mín hafði byggt nágrannajörðina Gilsbakka frá um 1900 – og er Gilhagi nýbýli út úr þeirri jörð. Við byrjuðum aftur með sauðfé um haustið 2018 og tókum þá heim aftur hluta úr ættstofni sem var ættaður úr Gilhaga og keyptum frá einum öðrum bónda hér í sveit sem var að hætta. Höfum við síðan byggt hægt og rólega upp stofninn ásamt geitunum eftir því sem efni standa til. Geiturnar komu árið 2019 og Ullarvinnsluna opnuðum við í júní 2020.

Hattatíska anda, nú í sumar. Mynd / Aðsend

Býli, staðsetning og stærð jarðar? Býlið er Gilhagi í Öxarfirði, Norðurþingi, en stærð jarðarinnar er aðeins yfir 100 ha auk sameiginlegs upprekstrarlands.

Ábúendur, fjölskyldustærð og gæludýr? Brynjar Þór Vigfússon, Guðrún Lilja Dam Guðrúnardóttir, þrjú börn, tveir hundar og köttur.

Gerð bús og fjöldi búfjár? Sauð- og geitfjárrækt, skógrækt og ullarvinnsla. 90 kindur, 19 geitur, 8 endur og 5 hestar.

Hvers vegna veljið þið þessa búgrein? Sauð- og geitfjárrækt hentar okkar bújörð best. Við fengum í kaupbæti skógræktina á bænum sem hafði verið stunduð af dugnaði undanfarna áratugi.

Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Annað okkar vaknar kl. 6 og fer í fjárhúsin í morgunverkin. Fjölskyldumorgunmatur kl. 7 og þegar börnin fara í skóla og leikskóla fara fullorðnir í vinnu. Ullarvinnsluna eða aðra aukavinnu. Seinnipartinn reynum við að fara saman í fjárhúsin þó það geti reynst stundum erfitt að peppa börnin yfir háveturinn. Enda vel á fótinn upp í fjárhús og skaflarnir miklir fyrir litla fætur eftir langan dag.

Yngsti gleðigjafi heimilisins.
Mynd / Aðsend

Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegasti tíminn er sauð- og kiðburður. Það eru í raun engin leiðinleg störf, aðallega miserfið.

Hvað er það jákvæða við að vera bóndi? Nærveran við dýr og náttúru. Að stjórna tímanum sínum sjálfur getur verið jákvætt en líka neikvætt. Uppskera hvers konar, til dæmis hress og kát lömb og kiðlingar á túni um vor, og í réttinni um haust. Ull í öllum mögulegum litum um haustið.

Hverjar eru áskoranirnar? Getur verið erfitt að hafa upp í reikningana á litlu búi þegar verið er að byggja upp bú og í núverandi dýrtíð. Það hefði sjálfsagt verið mjög sniðugt fyrir okkur að byrja að byggja upp búið okkar fyrir um 30–40 árum síðan og vera núna komin með góðan og arðbæran dýra- og tækjakost. En við hefðum þá reyndar þurft að fæðast aðeins fyrr og leggja enn harðar að okkur.

Hvernig væri hægt gera búskapinn ykkar hagkvæmari? Fjölga aðeins kindum og geitum og reyna að vinna meira sjálf úr afurðunum. Ullin, fiðan, mjólkin og kjöt. Höfum aðeins skoðað mjólkurvinnslu og langar að þróa hana áfram.

Hvernig sjáið þið landbúnað á Íslandi þróast næstu árin? Við erum nokkuð bjartsýn en það er ýmislegt sem þarf að breytast. Landbúnaður dafnar ekki nema með sameiginlegu átaki allra, bænda, stjórnvalda og almennings.

Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Í fyrsta kiðburðinum okkar misstum við geit frá tveggja daga gömlum kiðlingi. Hann var þá tekinn heim á bæ á júróvisjónkvöldi í peladrykkju og krakkakúr, og alinn upp sem hálfgerður heimalningur upp frá því, Hann fann sér reyndar sjálfur með tíð og tíma fósturmóður, drakk þá fullan skammt úr pela og svo eins mikið og hann gat í kapp við fóstursystur sína, Enda er hann stór og gerðarlegur í dag.

Instagram-síða:@gilhagi_farm

Geitahópur á góðri stund. Mynd / smh

Svín og korn
Bóndinn 12. júlí 2024

Svín og korn

Bændurnir í Laxárdal stunda svína- og kornrækt en lesendur munu geta fylgst með ...

Góð samvinna
Bóndinn 28. júní 2024

Góð samvinna

Þau Eyjólfur Ingvi Bjarnason og Guðbjört Lóa Þorgríms- dóttir tóku við búinu Ásg...

Reksturinn í góðum höndum
Bóndinn 14. júní 2024

Reksturinn í góðum höndum

Bústjóri og fjósameistari Flateyjar á Mýrum taka nú við keflinu en lesendur geta...

Með korn og kýr í haga
Bóndinn 31. maí 2024

Með korn og kýr í haga

Nú kynnast lesendur búskapnum á Reykjahlíð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, en við ...

Bjartsýnir geitabændur
Bóndinn 17. maí 2024

Bjartsýnir geitabændur

Nú kynnast lesendur búskapnum á Gilhaga í Öxarfirði, en við gefum Brynjari Þór V...

Starfinu fylgja forréttindi
Bóndinn 29. apríl 2024

Starfinu fylgja forréttindi

Elínborg Erla Ásgeirsdóttir býr í Breiðargerði í fyrrum Lýtingsstaðahreppi í Ska...

Dýrmæt samvinna
Bóndinn 15. apríl 2024

Dýrmæt samvinna

Þórdís Halldórsdóttir bóndi kynnir lesendum búskap sinn á Ytri-Hofdölum í Skagaf...

Verðmæti til í öllu
Bóndinn 22. mars 2024

Verðmæti til í öllu

Grænegg eiga sér tæplega 70 ára fjölskyldusögu í hænsnarækt auk þess sem Sveinbj...