Heiðarbær II
Sveinn Ingi og Andrea flytja á Heiðarbæ II 2016 og koma inn í búskapinn með Sveinbirni, föður Sveins.
Sveinn Ingi er fæddur og uppalinn á Heiðarbæ II. Í október á þessu ári byrjuðu Sveinn og Andrea að reisa sér íbúðarhús á bænum.
Sveinbjörn Jón Einarsson, langafi Sveins, flutti að Heiðarbæ 1921 frá Hvítanesi í Kjós. Ábúð ættarinnar er að ná 100 árum.
Býli: Heiðarbær II.
Staðsett í sveit: Í Þingvallasveit í Bláskógabyggð.
Ábúendur: Sveinn Ingi Sveinbjörnsson, Andrea Skúladóttir og Sveinbjörn F. Einarsson.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við eigum 3 börn, 3 hunda, 1 kött, 1 kanínu og afa Sveinbjörn.
Stærð jarðar? Um 4.000 ha.
Gerð bús? Sauðfjárbúskapur og kjúklingaeldi.
Fjöldi búfjár og tegundir? Erum með 450 vetrarfóðraðar kindur, eldi 10.000 kjúklinga fyrir Reykjabúið og 12 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Dagurinn byrjar á að líta til með kjúklingunum. Næst fer Sveinbjörn í skólaakstur og keyrir börnin úr sveitinni í grunnskólann á Laugarvatni. Sveinn Ingi og Andrea eru bæði útivinnandi. Gegningar kvölds og morgna og önnur tilfallandi störf.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Þegar þetta var rætt kom sama starfið upp í báðum tilfellum. Smalamennskur í góðu veðri og þegar gengur vel er það skemmtilegast en geta verið það allra leiðinlegasta í slyddu og éljum í eftirleitum.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Með nokkuð svipuðu sniði nema forsendur breytist.
Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Erum ansi slök við þátttöku í félagsmálum bænda og höfum ekki sterkar skoðanir á þeim.
Hvernig mun íslenskum landbúnaði vegna í framtíðinni? Ef við höldum í hreinleika og rekjanleika afurða mun landbúnaði vegna vel. Vonandi gefst bændum meiri kostur á því að vinna sínar afurðir sjálfir í meira mæli og selja beint frá býli.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Tækifærin liggja í öllum greinum landbúnaðarins. Framúskarandi afurðir sem þarf að kynna sem víðast.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, lifrarpylsa, smjör og ostur.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Innfluttir Costco-tómatar og nýsjálenskir lambahryggir ... eða bara lifrarpylsa og svellköld íslensk mjólk með.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það er erfitt að segja hvað er eftirminnilegast. Við feðgar erum ansi tækjaglaðir og höfum brennandi áhuga á dráttarvélum og stendur ofarlega þegar við fluttum inn Fendt-dráttarvél og tókum til starfa í búskapnum og verktöku.