Mikilvægt skref í uppbyggingu Akureyrarflugvallar
Samningur um smíði á 1.100 fermetra viðbyggingu við Flugstöðina á Akureyri var undirritaður skömmu fyrir áramót. Samningsupphæðin er 810,5 milljónir króna og verður verkinu skipt upp í þrjá áfanga, nýja byggingu norðan við núverandi húsnæði og endurbætur á eldra húsnæði.