Margildi verðlaunað fyrir síldarlýsi
Frumkvöðlafyrirtækið Margildi veitti nú nýverið viðtöku hinum alþjóðlegu iTQi (International Taste & Quality Institute) Superior Taste Award matvælagæðaverðlaunum fyrir síldarlýsi sitt. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í hinu sögufræga Cercle Royal Gaulois, í Brussel að viðstöddu miklu fjölmenni.