Glæný sumarblóm í ker
Svalir og sólpallar fyllast einstökum ævintýraljóma þegar búið er að koma þar fyrir smekklegum og sumarlegum blómakerjum og pottum, stútfullum af glóðvolgum og glænýjum sumarblómum.
Fjöldinn allur af sumarblómategundum þrífst vel við íslenskar aðstæður og hægt að finna blóm fyrir hvers manns ker, alla mögulega og ómögulega liti, stór eða lítil blóm, hávaxin og lágvaxin, hangandi, upprétt, breið- eða grannvaxin og þannig mætti lengi telja.
Mikilvægt að hafa göt í botni íláta
Við val á kerjum og pottum til ræktunar er nauðsynlegt að hafa göt á botni ílátanna til að tryggja að vatn sitji ekki á rótum plantnanna. Þegar kemur að gróðursetningunni er gott að setja bút af jarðvegsdúk eða gamalli tusku yfir götin, áður en jarðvegur er settur í ílátin, er það gert til að tryggja að fína efnið úr moldinni skolist ekki út úr pottinum og valdi óþrifum í grennd. Ef um er að ræða stóra potta eða ker er ágætt að setja góðan slurk af vikri eða grófri möl neðst í pottinn og fylla svo upp með góðri pottamold. Plönturnar eru svo teknar úr pottunum og þeim raðað í pottinn í þeirri uppsetningu sem þykir falleg, oft er heldur minna bil á milli plantna í pottum en í beðum. Fyllt er upp í bilið á milli plantnanna með gróðurmoldinni og passað upp á að moldaryfirborðið sé 2-3 cm fyrir neðan pottbrúnina, þá er auðvelt að vökva ofan í pottinn án þess að mold og vatn sullist yfir brúnina.
Uppáhaldspottarnir með í fríið
Eftir gróðursetningu er vökvað yfir pottinn og hann settur á sinn stað. Plöntur í pottum og kerjum þarf að vökva eftir þörfum allt sumarið og ágætt að gefa þeim venjulegan pottablómaáburð með vökvunarvatninu 1-2 sinnum í viku allt sumarið. Þó er óþarfi að gefa áburð fyrstu tvær til þrjár vikurnar eftir gróðursetningu því pottamoldin inniheldur að jafnaði áburð sem dugar í þann tíma. Yfir sumarið er ágætt að fjarlægja visin blóm eftir þörfum til að halda kerinu fallegu og endurnýja plöntur ef þær verða fyrir skakkaföllum. Þegar farið er í frí er alveg tilvalið að taka með sér uppáhaldspottana og stilla þeim upp við hjólhýsið eða tjaldvagninn, það sýnir að fólki er full alvara í ræktuninni.