Sótspor gæludýra
Því hefur verið haldið fram að besta leiðin til að leggja sitt af mörkum í umhverfismálum sé að hætta að borða kjöt. Næstbest er að eiga ekki gæludýr og þar á eftir að eiga ekki börn þar sem sótspor alls þessa er mikið.

FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, hefur tekið saman yfirlit um búfjárrækt og búfjárafurðir í heiminum og losun gróðurhúsalofttegunda eða sótspor af þeirra völdum. Talið er að draga megi úr losun gróðurhúsalofttegunda af völdum búfjárræktar um 30% með betri ræktunar- og framleiðsluaðferðum.