Niðurstöður skýrsluhaldsársins í nautakjötsframleiðslunni 2024
Á faglegum nótum 28. janúar 2025

Niðurstöður skýrsluhaldsársins í nautakjötsframleiðslunni 2024

Höfundur: Guðmundur Jóhannesson og Sigurður Kristjánsson.

Niðurstöður skýrsluhaldsársins í nautakjötsframleiðslunni 2024 hafa verið reiknaðar og birtar á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins, www.rml.is. Hér verður farið yfir helstu tölur úr uppgjörinu.

Uppgjör fyrir nautakjötsframleiðsluna nær til þeirra búa sem halda holdakýr. Enn er þetta yfirlit þeim annmörkum háð að niðurstöðurnar ná ekki yfir þær holdakýr sem haldnar eru á búum þar sem einnig er um að ræða mjólkurframleiðslu. Þetta hefur sína kosti og galla. Kosturinn er sá að uppgjörið tekur til sérhæfðra búa með holdakýr en gallinn er sá að ekki eru allar holdakýr með í uppgjörinu.

Skýrsluhald nautakjötsframleiðslunnar árið 2024 nær til 112 búa og þar af er að finna holdakýr af erlendu kyni á 90. Búunum fækkar því um tíu milli ára og búum þar sem er að finna holdakýr ef erlendu kyni fækkar um tvö. Kýr á þessum búum voru við uppgjör ársins 3.294 talsins, sem er fækkun um 151 frá árinu áður. Meðalfjöldi kúa á búi var 29,4 samanborið við 28,2 árið áður og reiknast þessar kýr yfir í 27,7 árskýr á bú en voru 25,8 árið 2023. Alls var um að ræða 2.719 skráða burði á þessum búum á árinu 2023 sem jafngildir 0,83 burðum/kú. Þetta er fjölgun um 13 burði og aukning um 0,04 burði á kú milli ára.

Kjötframleiðsla og flokkun ársins 2024

Heildarframleiðsla ársins á þessum 112 búum nam um 840 tonnum og því nær uppgjörið til 6 tonnum minna kjöts en árið áður. Þetta þýðir að þessi bú framleiða nálægt 17% alls nautgripakjöts á landinu. Meðalframleiðsla á bú var 7.501 kg en heildarfjöldi slátraðra gripa var 3.174. Sambærilegar tölur frá fyrra ári eru 6.934 kg og 3.242 gripir. Meðalfallþungi kúa frá þessum búum var 227,1 kg, en hann reyndist 225,6 kg árið áður og meðalþungi ungneyta var 273,9 kg en þau vógu til jafnaðar 267,9 kg 2023. Til jafnaðar var ungneytunum fargað 699,8 daga gömlum eða 21,5 dögum yngri að meðaltali en á árinu 2023. Það jafngildir vexti upp á 381,3 g/dag, reiknuðum út frá fallþunga, en sambærileg tala frá fyrra ári var 343,7 g/dag. Til samanburðar var slátrað 9.558 (9.553) ungneytum á landinu öllu sem vógu 257,1 (256,4) kg að meðaltali við 732,0 (743,1) daga aldur. Tölur innan sviga eru frá 2023. Þessi sérhæfðu bú sem yfirlitið nær til ná því gripunum þyngri við lægri aldur að jafnaði, eins og undanfarin ár, og fer bilið vaxandi. Heilt yfir eru ungneyti þyngri en árið áður þrátt fyrir að vera alin aðeins færri daga.

Ef litið er á flokkun gripanna var meðalflokkun ungneyta á þessum búum 6,3 (6,1) á meðan meðalflokkun ungneyta yfir landið er 5,0 (4,9). Flokkun er því mun betri á þessum búum til jafnaðar, rétt eins og árið áður, og sá munur fer vaxandi. Rétt er að hafa í huga að meðalflokkun er reiknuð þannig að flokkunum er gefið tölugildi þar sem P = 2, O = 5, R = 8, U =11 og E = 14. Meðalgripurinn á landinu öllu er því nálægt því að flokkast í O.

Frjósemi

Á árinu 2024 fæddust 2.719 kálfar á þessum búum og reiknast meðalbil milli burða 457 (451) dagur. Bil milli burða er því nálægt 15 mánuðum sem er töluvert lengra en svo að meðalkýrin nái einum burði á ári. Framleiðsla nautakjöts með holdakúm verður tæpast arðbær hérlendis nema að þessi þáttur taki breytingum til batnaðar. Við þetta bætist að hlutfall dauðfæddra kálfa við 1. burð er 12,2% (14,1%), 4,3% (4,7%) við aðra burði og vanhöld frá 0-6 mánaða 2,6% (3,3%) þannig að fjöldi kálfa til nytja verður töluvert langt innan við kálf á kú á ári. Tölur í svigum hér eru frá fyrra ári. Í heildina dregur umtalsvert úr vanhöldum sem er af hinu góða.

Notkun sæðinga á þessum búum jókst aðeins milli ára. Þannig voru sæddar 476 kýr á árinu 2024 saman- borið við 451 kú árið áður. Hlutfall sæddra kúa hækkar því í 14,5% úr 13,1%. Fjöldi sæddra kúa af erlendu kyni var 408 af þessum 451 sem sæddar voru. Til jafnaðar voru kýrnar sæddar 1,3 (1,3) sinnum og að meðaltali liðu 108,6 (103,4) dagar frá burði til 1. sæðingar. Þær kýr sem eru sæddar þetta löngu eftir burð munu ekki bera með 12 mánaða millibili. Þetta er þáttur sem gefa þarf betri gaum.

Tölum úr skýrsluhaldinu ber saman við afkomutölur. Búum fer nú fækkandi, meðalbúið stækkar og þau bú sem notfæra sér Angus-erfðaefnið eru greinilega að ná stórstígum framförum.

Árangur einstakra búa

Það bú sem náði mestum meðalþunga gripa á nýliðnu ári var Breiðaból á Svalbarðsströnd þar sem meðalfallþungi 32 gripa var 382,6 kg. Annað búið á þessum lista er Nýibær undir Eyjafjöllum með meðalfallþunga upp á 378,0 kg og þriðja í röðinni er Saurbær í Skagafirði þar meðalfallþunginn var 363,9 kg. Í töflu 2 má sjá þau 10 bú sem náðu mestum meðalfallþunga á árinu 2024.

Eitt er að ná sláturgripum þungum, annað er að ná þeim sem þyngstum á sem skemmstum tíma. Góður mælikvarði á það er vaxtarhraði. Í töflu 3 er listi yfir þau bú sem náðu mestum meðalvaxtarhraða gripa á árinu 2024 og er meðalvöxturinn reiknaður út frá aldri og fallþunga.

Kjötmatið á að gefa góða vísbendingu um kjötgæði og í töflu 4 er að finna lista yfir þau bú sem náðu hæstri einkunn í holdflokkun á árinu 2024. Þar er eins og svo oft holdflokkun umreiknuð í eina tölu þar sem P = 2, O = 5, R = 8, U =11 og E = 14.

Mestur þungi og vöxtur

Þyngsta ungneytið, þ.e. gripur á aldursbilinu 365 til 730 daga (12-30 mán.), sem slátrað var árinu 2024 var naut nr. 236 í Hægindi í Reykholtsdal. Þessi gripur var holdablendingur, 71% Angus, 6% Limousine, 6% Galloway og 17% íslenskur, undan Erpi 20402 og vóg 460,6 kg er honum var slátrað við 644 daga aldur. Hann flokkaðist í UN R3+. Í töflu 5 má sjá þau ungneyti sem náðu yfir 425 kg fallþunga á árinu 2024 en þau voru þrettán talsins og frá fjórum búum. Þetta eru allt gripir sem hafa náð sérlega miklum vexti og þar með þunga en athygli vekur að þarna skila nýju Angus-nautin ákaflega góðu. Rétt er að benda á að naut nr. 16378711204 í Nýjabæ sem á nokkra syni þarna í töflunni var sonur Vísis-ET 18400.

Í töflu 6 má sjá þau ungneyti sem náðu mestum daglegum vexti reiknuðum út frá fallþunga. Miðað er við að gripirnir hafi náð a.m.k. 450 daga aldri við slátrun og reiknað er með 20 kg fallþunga við fæðingu. Mestum eða hröðustum vexti ársins náði naut númer 1495 í Nýjabæ undir Eyjafjöllum. Sá gripur var holdablendingur, 61% Angus, 28% íslenskur og 11% Limousine. Vöxtur þessa grips reiknast miðað við áðurnefndar forsendur 760,5 g/ dag sem er geysigóður vöxtur. Aðrir bæir sem hér koma við sögu eru Reykir og Hofsstaðasel í Skagafirði og Grænahlíð í Eyjafirði.

Þessar tölur og listar yfir þá gripi sem eru þyngstir og ná mestum vexti sýna vel hve holdablendingarnir skara fram úr, einkum og sér í lagi synir og afkomendur yngri Angus-nautanna frá einangrunarstöðinni á Stóra-Ármóti. Allir gripirnir í töflum 5 og 6 eru synir eða sonarsynir þeirra nauta.

Þá verður ekki hjá því komist að nefna þann glæsilega árangur sem náðst hefur í Nýjabæ undir Eyjafjöllum. Ef rýnt er í tölur má glöggt sjá að stefnan er að framleiða gripi sem skila miklum vexti og kjötgæðum en ekki endilega gríðarmiklum þunga. Fremur er horft til þess að gripirnir nái góðum sláturþunga á þeim tíma sem hentar og ekki þurfi að ala þá nema einn vetur á húsi.

Ef við skoðum meðfylgjandi graf sjáum við að afkvæmi Angus-nautanna frá NAUTÍS ná meiri þunga á styttri tíma, þ.e. þau vaxa hraðar en önnur ungneyti sem slátrað var á síðasta ári. Þegar reiknaður er meðalvaxtarhraði á dag út frá fallþunga kemur í ljós að afkvæmi nýju Angus-nautanna uxu sem nam 454,0 g/dag meðan önnur ungneyti náðu vexti sem nam 316,1 g/dag. Þarna munar tæplega 140 grömmum á dag sem þýðir að á einni viku ná afkvæmi hreinræktuðu Angus- nautanna um 1 kg meira af kjöti en hinir gripirnir.

Tölur ársins 2024 gefa til kynna að eldi sláturgripa tekur framförum og vegur þar tilkoma nýja Angus- erfðaefnisins án efa þungt en tilkomu þess er farið að gæta svo um munar í sláturtölum. Hins vegar er breytileikinn alltof mikill eins og grafið sýnir okkur þar sem mikill fjöldi ungneyta nær ekki 200 kg fallþunga við slátrun. Það vantar því töluvert upp á að eldi gripa til kjötframleiðslu sé nægilega gott þó töluverður hópur nái orðið mjög góðum árangri á því sviði.

Að lokum er full ástæða til þess að óska þeim framleiðendum sem náð hafa góðum árangri við framleiðslu á nautakjöti til hamingju með þann árangur. Allar tölur í greininni miðast við stöðu gagnagrunns þann 15. janúar 2025.

Tafla 1: Ársuppgjör nautakjötsframleiðslunnar 2024. Heimild og töflur / Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins

„Spjallað“ við kýr
Á faglegum nótum 9. janúar 2023

„Spjallað“ við kýr

Atferli, hegðun, útlit og ástand nautgripa getur gefið gríðarlega mikilvægar upp...

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Skógarbændur og Bændasamtök Íslands

Á aðalfundi Landssambands skógareigenda (LSE) sem haldinn var í Borgarnesi í maí...

Lífræn framleiðsla – nú er lag
Á faglegum nótum 5. janúar 2023

Lífræn framleiðsla – nú er lag

Á undanförnum árum hefur VOR látið til sín taka með ýmsum hætti til að hvetja ti...

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið
Á faglegum nótum 3. janúar 2023

Eitur á alltaf að vera síðasta úrræðið

Meindýr eru skaðvaldar í garð- og skógrækt og óvelkomnir gestir sem flestir vild...

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna
Á faglegum nótum 2. janúar 2023

Ýmsir vankantar við smíði nýju norrænu næringarráðanna

Vinna við norrænu næringarráðin (NNR), sem Norræna ráðherra­nefndin heldur utan ...

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022
Á faglegum nótum 30. desember 2022

Um niðurstöður lambadóma haustið 2022

Í heildina var útkoma lamba í haust góð. Meðalfallþungi á landinu var 16,6 kg og...

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?
Á faglegum nótum 28. desember 2022

Lífrænn úrgangur: höfuðverkur eða tækifæri?

Hér á landi fellur til gríðarlegt magn af lífrænum úrgangi á öllum stigum samfél...

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs
Á faglegum nótum 27. desember 2022

Skýrsluhald – heimarétt WorldFengs

Nú þegar líður að áramótum og allir eru búnir að skila haustskýrslu til matvælar...