Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Svanhildur Pálsdóttir, viðburðastjóri Prjónagleðinnar á Blönduósi, Margrét Jónsdóttir og Katrín Andrésdóttir á síðustu hátíð.
Svanhildur Pálsdóttir, viðburðastjóri Prjónagleðinnar á Blönduósi, Margrét Jónsdóttir og Katrín Andrésdóttir á síðustu hátíð.
Líf og starf 4. júní 2024

Prjónagleðin í áttunda sinn

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Prjónahátíðin Prjónagleði verður haldin í áttunda sinn á Blönduósi helgina 7.-9. júní.

Svanhildur Pálsdóttir segir að hátíðin byggist sem fyrr upp á námskeiðum, fyrirlestrum og prjónatengdum viðburðum, en hún er starfsmaður Textílmiðstöðvar Íslands og Húnabyggðar sem standa fyrir hátíðinni.

„Garntorgið er svo alltaf hjarta hátíðarinnar þar sem 24 söluaðilar af öllu landinu verða með alls konar spennandi prjónatengdan varning til sölu, meðal annars íslenskt ullargarn af ýmsu tagi, bæði frá smáframleiðendum og Ístex. Á Garntorginu er einnig prjónakaffihús þar sem hægt er að njóta góðra veitinga, spjalla og prjóna. Við höfum alltaf fengið mjög góðar viðtökur í bænum og í prjónaheiminum á Íslandi – og ekkert vandamál að fá fólk til að taka þátt í þessari hátíð sem ég myndi segja að væri ein skemmtilegasta og nördalegasta bæjarhátíð landsins. Það má segja að þetta sé hálfgerð uppskeruhátíð hjá okkur, prjónafólki,“ bætir Svanhildur við og bendir á að boðið sé upp á sætaferðir bæði úr Reykjavík og frá Akureyri á hátíðina.

Meðal viðburða á hátíðinni nefnir Svanhildur prjónaheimsóknir í heimahús sem sé nýjung, þar sem nokkrir bæjarbúar bjóða heim í kaffi til að prjóna saman, samprjón í sundi, prjónamessan verður á sínum stað, prjónasýningar og bingó – auk þess sem opin hús verða hjá TextílLabi Textílmiðstöðvarinnar og Ullarþvottastöð Ístex. Þá nefnir hún sérstaklega prjónakvöldvöku í bakaríinu Krúttinu á laugardagskvöldinu.

4 myndir:

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 15. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn er eitthvað órór þessa dagana enda einhver stífla á verkefnum í krin...

Gerum okkur dagamun
Líf og starf 12. júlí 2024

Gerum okkur dagamun

Nú er ekki seinna vænna en að fara að leggja línurnar fyrir sumarið og með það t...

Bænder
Líf og starf 12. júlí 2024

Bænder

Sumir fara á Tinder. Aðrir hafa ekki tíma í slíkt vegna anna í búskapnum. Hér, k...

Vættafundur á Eyjabökkum
Líf og starf 10. júlí 2024

Vættafundur á Eyjabökkum

Orðsins list kemur að þessu sinni frá Oddbjörgu Sigfúsdóttur.

Sumarkveðja
Líf og starf 10. júlí 2024

Sumarkveðja

Nú þegar lífið kviknar með sumrinu og golan leikur við kinn, skulum við gleðjast...

Himbrimi
Líf og starf 9. júlí 2024

Himbrimi

Himbrimi er nokkuð stór vatnafugl og er einn af einkennisfuglum íslenskra heiðav...

Sumarsveiflan 2024
Líf og starf 8. júlí 2024

Sumarsveiflan 2024

Áherslur tískunnar fara nokkuð vítt og breitt þetta árið en nú þegar er farið að...

Dugur og elja ofar öllu
Líf og starf 8. júlí 2024

Dugur og elja ofar öllu

Eitt þeirra mætu kvenfélaga sem hér á landi sitja er Kvenfélag Hringsins sem hef...