Leyndardómar náttúrulegrar ostagerðar
Höfundur: Guðrún Hulda Pálsdóttir
Í október mun kanadískur ostagerðarmaður og bóndi, David Asher, veita innsýn inn í leyndardóm ostagerðar á fimm daga löngu námskeiði sem haldið verður í Bragganum í Birtingarholti. Það er parið Erna Skúladóttir og Bjarki Þór Sólmundsson hjá Góðgresi sem standa fyrir námskeiðinu.
Á námskeiðinu munu þátttakendur láta reyna á gerð ýmissa tegunda osta og mjólkurvara. Farið verður í tengsl á milli osta og mismunandi vinnsluaðferðum. Erna segir námskeiðið nýtast öllum þeim sem hafa áhuga á ostum og ostaframleiðslu.
„Mér finnst best að vera sem tengdastur því sem maður lætur ofan í sig. Auk þess að hafa stjórn á því hvað maður er að nota í ostana sína þá er ostagerð er mikið handverk,“ segir Erna.
Sjálf hefur hún verið að prófa sig áfram í ostagerð en hafði áhuga á að læra meira. Hún átti bók eftir David.
„David vinnur ostagerð á gamlan náttúrulegan hátt. Vinnslan er svolítið eins og súrdeig er í brauðgerð. Þannig eru náttúrulegu gerlarnir í mjólkinni notaðir til að búa til ostanna en engir tilbúnir gerlar. Ég hafði samband við David því mig langaði að fara á námskeið hjá honum. Við fóru aðeins að spjalla og það endaði með að við buðum honum hingað að halda námskeið.“
Rekur lífrænt bú í Kanada
David Asher rekur lífrænt bú og ostagerð í Bresku Kólumbíu í Kanada og er höfundur bókarinnar The Art of Natural Cheesemaking. Hann rekur ferðaskólann The Black Sheep School of Cheesemaking og ber út boðskap náttúrlegrar ostagerðar víða um heim.
„Á námskeiðinu fer hann yfir alla helstu þætti ostagerðar á fimm dögum. Hann byrjar á að sýna hvernig maður býr til jógúrt og skyr og grunnosta á borð við rjómaost. Svo færir hann sig yfir í mozarella og mjúkosta. Þaðan í hvítmyglu og blámygluosta og harða osta. Síðasta daginn fer hann líka í gerð ricotta og notkun á afgangsafurðum í ostagerð,“ segir Erna.
Jóga og hugleiðsla í upphafi hvers námskeiðsdags
Námskeiðið er haldið í Bragganum, en þar var rekið kaffihús og leirvinnustofa. Þátttakendum býðst að gista á gistiheimilinu á Syðra-Langholti. Allt uppihald er innifalið í námskeiðinu ásamt jóga- og hugleiðslutímum í upphaf hvers dags. Námskeiðið er ætlað um 20 þátttakendum og nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Braggans, bragginnstudio.is.