Klikkað að fara í rússíbana
Bryndís Ýr er 11 ára Grafarvogsbúi sem hlustar á Skálmöld, finnst Hungurleikarnir skemmtilegustu kvikmyndir sem hún hefur séð og gæti vel hugsað sér að verða leikskólakennari eða bóndi.
Nafn: Bryndís Ýr Sigurþórsdóttir.
Aldur: 11 ára.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Grafarvogur, Reykjavík.
Skóli: Kelduskóli-Vík.
Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum? Heimilisfræði og leiklist.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur.
Uppáhaldsmatur: Lax.
Uppáhaldshljómsveit: Skálmöld.
Uppáhaldskvikmynd: Hungurleikarnir 1 og 2.
Fyrsta minningin mín: Þegar ég kynntist vinkonu minni í leikskóla.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Nei.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Leikskólakennari eða bóndi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Fara í rússíbanann í Flórída.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Keyra lengi í bíl.
Gerðir þú eitthvað sérstakt í sumar? Fór hringinn í kringum Ísland.