Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Volkswagen ID.Buzz er nýr rafmagnsbíll sem beðið hefur verið eftir. Við hönnun bifreiðarinnar hefur verið horft til rúgbrauðanna sem Volkswagen framleiddi um miðja öldina. Með smekklegu útliti og praktísku innrarými er líklegt að þessi bíll höfði til margra.
Volkswagen ID.Buzz er nýr rafmagnsbíll sem beðið hefur verið eftir. Við hönnun bifreiðarinnar hefur verið horft til rúgbrauðanna sem Volkswagen framleiddi um miðja öldina. Með smekklegu útliti og praktísku innrarými er líklegt að þessi bíll höfði til margra.
Mynd / ÁL
Líf og starf 5. janúar 2023

Sjá, ég boða yður mikinn fögnuð

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Það ber til um þessar mundir að fyrstu eintökin af Volkswagen ID.Buzz eru byrjuð að berast til landsins.

Mikil eftirvænting hefur verið eftir þessum bílum frá því fyrstu ljósmyndirnar af þeim sáust í fjölmiðlum. Þeir ættu að taka þennan strumpastrætó til skoðunar sem eru að leita að sjarmerandi bíl sem fer vel með fimm fullorðna – eða allt dótið sem fylgir ungum börnum. Ef bera á ID.Buzz saman við aðra bíla á markaðnum er Peugeot e-Traveller sá sem kemur helst til greina.

Tvílitar smárúturnar, með hvítan topp og bjarta liti að neðan, sem hafa sést í kynningarefni frá framleiðandanum, höfða mikið til nostalgíunnar – enda greinilegt að hönnuðir bílsins horfðu til gömlu rúgbrauðanna frá sjötta, sjöunda og áttunda áratugnum. Bíllinn sem blaðamaður fékk í hendurnar var silfurgrár að lit, sem gerir hann lágstemmdari en þá tvílitu. Það fer þó ekki á milli mála að hér er um eitthvað nýtt og ferskt að ræða. Örstutt húddið, stórt VW merkið á nefinu og ferkantað formið leiða hugann að forveranum, en samt sem áður er allt yfirbragðið nútímalegt.

Þegar stigið er um borð er ekkert sem minnir á fortíðina. Innrarýmið er mjög opið og stórir gluggar á öllum hliðum gefa óhindrað útsýni og hleypa inn mikilli birtu. Viðarlíki á mælaborðinu ásamt plasti með áláferð gefur fágun. Gólfið í bílnum er svo gott sem flatt sem býður upp á mikla möguleika. Sé þess til dæmis óskað er auðvelt að fjarlægja miðjustokkinn og klöngrast á milli sætaraða án mikilla erfiðleika.

Framsæti eins og skrifborðsstólar

Framsætin eru ein sterkasta hlið bílsins. Sætisstaðan er há og upprétt og eru stillanlegar armhvílur til beggja hliða, sem minnir um margt á vandaða skrifborðsstóla. Ökumaðurinn fær afbragðs yfirsýn yfir veginn vegna hárrar stöðu og stutts húdds og er hægt að líkja tilfinningunni við að sitja í vörubíl, nema hér er um mjög lipurt farartæki að ræða.

Innréttingin er mínímalísk og fáguð. Nær engir hnappar eru sjáanlegir, heldur er öllu stjórnað í gegnum snertiskjá og hnappa í stýri. Sætin fram í eru há og upprétt með tveimur armpúðum – svipað og skrifborðsstólar.

Tveir skjáir eru í mælaborðinu og þveröfugt við marga bílaframleiðendur hefur Volkswagen farið þá leið að hafa þá litla. Skjárinn sem gefur allar akstursupplýsingarnar er á stærð við stærstu iPhone símana og er áfastur stýrissúlunni. Í miðju mælaborðsins er skermur á stærð við spjaldtölvu og í gegnum hann er öllu stýrt sem viðkemur eiginleikum bílsins, ásamt útvarpi, miðstöð og leiðsögukerfi. Einfalt er að tengja símann þráðlaust í gegnum Android Auto eða Apple CarPlay til að stjórna Spotify, Storytel, Google Maps og öðrum öppum.

Volkswagen hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir að fjarlægja nær alla efnislega hnappa úr nýjustu bílunum sínum. Hins vegar eru hnappar í stýrinu fyrir helstu skipanir sem gera ökumanninum lífið með snertiskjá auðveldara – farþegann munar ekkert um að beita örlítið meiri einbeitingu við að skipta um útvarpsstöð eða stilla hitann. Sjálft stýrikerfið er þannig að flestir ættu að ná tökum á því með markvissu fikti – ef það bregst er alltaf hægt að sækja ungling sér til aðstoðar.

Nóg pláss í öllum sætum

Bíllinn í þessum prufuakstri var fimm sæta, en lengri útgáfu með sjö sætum er að vænta eftir einhver misseri. Þó svo að þetta sé svokölluð styttri útgáfa – þá er alls enginn skortur á plássi. Þrír fullorðnir geta hæglega vel við unað í aftursætunum þremur og er miðjusætið líklegast besta sætið í bílnum – því þegar áðurnefndur miðjustokkur hefur verið fjarlægður er fótaplássið ótakmarkað. Rennihurðirnar á hliðunum opnast vel þannig að auðvelt er að athafna sig í kringum barnabílstóla.

Gott aðgengi er að afturbekknum í gegnum rennihurðir.

Skottið er sá hluti sem skilur þennan bíl frá öllum jepplingunum sem eru ráðandi á fjölskyldubílamarkaðnum – enda á ID.Buzz margt skylt með sendibílnum ID.Cargo. Skotthlerinn opnast upp og þurfa hávaxnir ekki að beygja sig til að komast að. Gólfið er alveg flatt og flúttir við hlerann. Hliðarnar eru lóðréttar, þannig að hægt er að stafla búslóð í kössum án vandræða – farminn væri jafnvel hægt að hafa á euro-bretti. Hægt er að kaupa falskt gólf sem flúttir við við aftursætin þegar þau eru lögð niður – þar með kemur alveg flatt gólf sem er svipað stórt og lítið hjónarúm.

Áreynslulaus akstur

Í akstri er fátt sem kemur á óvart. Þar sem þetta er rafmagnsbíll er ekkert ónæði frá sprengihreyfli og allt viðbragð er snöggt. Bíllinn er með 150 kW (204 hö) mótor sem knýr afturhjólin. VW hefur gefið fyrirheit um fjórhjóladrifna útgáfu síðar, en gott stöðugleikakerfi gerði afturdrifinn akstur í hálku auðveldan. Þar sem rafmagnsbílar eru þyngri en hefðbundnar bifreiðar þarf að koma fyrir stífari fjöðrun ella. Því er hægt að segja að ID.Buzz sé hastur úti á þjóðvegum – en ekki þannig að af því hljótist óþægindi. Þar sem mest öll þyngdin er í rafhlöðunum undir gólfinu er bíllinn nokkuð stöðugur á hlykkjóttum vegum.

Þessi bíll var útbúinn skynvæddum hraðastilli sem gerir meira en að fylgja hraða bílsins fyrir framan. Bifreiðin veit þegar ekið er að kröppum beygjum, gatnamótum og hringtorgum og hægir sjálfkrafa á sér. Einnig getur hann lesið hámarkshraðann á skiltum og stillt aksturshraðann samkvæmt því. Síðarnefndi eiginleikinn hefur þó þann ókost að bíllinn ruglast oft í ríminu og heldur að skilti á afreinum eigi við um stofnbrautina. Eftir að vera nokkrum sinnum kominn niður í 50 þar sem hámarkshraðinn er 80 slökkti blaðamaður á skiltalesaranum. Samkvæmt upplýsingum frá Heklu stendur þetta til bóta.

ID.Buzz á margt skylt með sendibílnum Volkswagen ID.Cargo sem einnig er byrjaður að berast til landsins. Ferkantað formið skilar sér í miklu rými fyrir fimm farþega og allan þeirra farangur.

Tölur

Grunnverð Volkswagen ID.Buzz er 8.490.000 krónum m. vsk. Helstu mál eru: lengd 4.712 mm, breidd (m. speglum) 2.212 mm og hæð 1.932 mm. Eigin þyngd er 2.481 kíló og heildarþyngd með 3.000. Rafhlaðan er 77kWst og á að gefa allt að 420 kílómetra drægni sk. framleiðanda. Eins og alltaf má taka þeim tölum með fyrirvara, en í þessum prufuakstri gaf rafhlaða með
80% hleðslu möguleika á rúmlega 300 kílómetra akstri.

Enga stund tekur að hlaða, en blaðamaður fyllti á bílinn úr 20% upp í 70% hleðslu á 23 mínútum á öflugustu hleðslustöð landsins.

Í stuttu máli: Rafmagnaða rúgbrauðið stendur undir þeim miklu væntingum sem til þess eru gerðar.

Skylt efni: prufuakstur

Besta gjöfin
Líf og starf 20. desember 2024

Besta gjöfin

Í jólabókaflóðinu sem nú stendur sem hæst kennir ýmissa grasa. Þar innan um stin...

Jólaföt á grænum nótum
Líf og starf 20. desember 2024

Jólaföt á grænum nótum

Vistvænt jóladress er eitthvað sem ætti að vera efst á listanum um þessar mundir...

Særður fram úr myrkviðum aldanna
Líf og starf 20. desember 2024

Særður fram úr myrkviðum aldanna

Íslenski jólakötturinn var næstum horfinn úr menningunni fyrir um hálfri öld þeg...

Á döfinni í desember
Líf og starf 20. desember 2024

Á döfinni í desember

Uppákomur og skemmtanir eru árvissir viðburðir um þetta leyti og ýmislegt áhugav...

Fórn vetrarsólstaða
Líf og starf 20. desember 2024

Fórn vetrarsólstaða

Víða um heim koma geitur fyrir í trúarbrögðum og eru heiðnar norrænar jólahefðir...

Uppselt þar til í janúar
Líf og starf 18. desember 2024

Uppselt þar til í janúar

Leikfélag Hveragerðis tók fyrir leikverkið vinsæla, Ávaxtakörfuna, nú í haust un...

Mannamót
Líf og starf 17. desember 2024

Mannamót

Bjarki Elvar Stefánsson sigraði á Íslandsmeistaramóti í Hornafjarðarmanna sem fó...

RÚV sýnir bridds aukinn áhuga
Líf og starf 17. desember 2024

RÚV sýnir bridds aukinn áhuga

Sveit InfoCapital er deildarmeistari 2024 í Deildakeppninni sem var spiluð í Haf...