Safnafólk á ferð og flugi
Á Íslandi má finna fjölbreytt, ólík og áhugaverð söfn um allt land. Í safnaflórunni má finna náttúruminja-, lista- og minjasöfn.
Hlutverk þessara safna eru margvísleg, en þó sýnilegasta hlutverk safna sé að taka á móti gestum, fer heilmikill hluti safnastarfs fram á bak við tjöldin. Söfn safna munum, myndum og minningum, svo þarf líka að skrá og varðveita menningararfinn fyrir framtíðina og komandi kynslóðir. Á söfnum eru líka unnar fjölbreyttar rannsóknir á safngripum og í tengslum við sýningar og niðurstöðum þeirra er svo miðlað til gesta.
Á hverju ári heldur safnafólk fagráðstefnu sem ber yfirskriftina Farskóli safnmanna. Ráðstefnan er skipulögð af Félagi íslenskra safna og safnafólks. Í farskólanum gefst safnafólki tækifæri til að hlýða á fyrirlestra, fjölbreytt erindi og taka þátt í vinnustofum sem nýtast í faglegu safnastarfi. Ráðstefnan er sérlega mikilvæg og skipulögð með það að markmiði að vera dýrmætur vettvangur fræðslu, miðlunar þekkingar og tengslamyndunar. Á farskólanum ber safnafólk saman bækur sínar og á þeim grunni hafa sprottið upp ótal spennandi samvinnuverkefni safna um allt land.
Á síðasta ári hittist hópurinn í frábæru veðri á Hallormsstað og átti saman skemmtilega og fróðlega daga þar sem fjallað var um söfn út frá öllum mögulegum hliðum.
Þá var þema ráðstefnunnar Söfn á tímamótum.
Á nokkurra ára fresti er ráðstefnan haldin erlendis, og núna um miðjan október leggur hópurinn leið sína til Hollands. Þar verður Amsterdam heimsótt en borgin er víðfræg fyrir fjölbreytta og öfluga safnamenningu.
Þá verða þarlend söfn heimsótt, ráðstefnugestir hlýða á fjölbreytt erindi og fá einstakt tækifæri til að læra af erlendum kollegum og kynna sér starfsaðstæður þeirra. Það má reikna með því að ferðin veiti mörgum innblástur og verður spennandi að sjá hvaða verkefni spretta upp í kjölfarið.