Vitleysingarnir ...
Þessa dagana er nóg um að vera hjá leikdeildinni enda hafa æfingar á leikriti vetrarins verið í fullum gangi. Um ræðir leikritið ,,Vitleysingana“ eftir Ólaf Hauk Símonarson, fjörugt, fyndið og krassandi stykki í leikstjórn Ólafs Jens Sigurðssonar.
Ólafur Haukur er þjóðinni að góðu kunnur fyrir sínar fjölmörgu skáldsögur, ljóðabækur og smásögur en einnig mörg vinsæl leikrit fyrir svið, útvarp og sjónvarp.
Þótt leikritið Vitleysingarnir hafi verið skrifað fyrir rúmum tveimur áratugum á það vel við enn þann dag í dag og varpar skoplegri sýn á samfélagið með persónum sem auðvelt er að tengja við, jafnvel þótt árið sé nú 2023.
Verkið sýnir á gamansaman hátt hvernig hið daglega amstur og hraðinn á gervihnattaöld gefa í skyn að allt sé í sóma. Undir yfirborðinu kraumar þó einmanaleiki og erfiðari tilfinningar þótt verðlaun lífsgæðakapphlaupsins séu aukin velsæld og metorð. Svört kómedía er kannski réttnefni – hraði og firring þar sem samskipti fyrr og nú, skemmtilegar uppákomur og ástríður eiga eftir að kitla áhorfendur.
Sýnt verður í Árnesi, en frumsýningin verður föstudaginn 3. mars, önnur sýning 5. mars, þriðja sýning 9. mars, fjórða sýning 11. mars og sú fimmta sunnudag 12. mars. Allar sýningar eru kl. 20.00. Miðapantanir í síma 8691118 og á gylfi1sig@gmail.com.