Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Halldór Kiljan Laxness. Hann skrifaði í Kristnihaldi undir jökli: „Sá sem ekki lifir í skáldskap lifir ekki af hér á jörðinni.“
Halldór Kiljan Laxness. Hann skrifaði í Kristnihaldi undir jökli: „Sá sem ekki lifir í skáldskap lifir ekki af hér á jörðinni.“
Menning 20. september 2023

Um guð og snjótittlinginn

Höfundur: Steinunn Ásmundsdóttir

Orðsins list kemur að þessu sinni frá Halldóri Kiljan Laxness. Halldór, f. 1902, d. 1998, er eitt okkar allra merkustu skálda og hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1955 fyrir að endurnýja íslenska skáldskaparlist.

Hann skrifaði fjölda skáldsagna, sumar í nokkrum hlutum, leikrit, kvæði, smásagnasöfn og endurminningabækur og gaf auk þess út mörg greinasöfn og ritgerðir. Bækur hans hafa komið út á yfir fjörutíu tungumálum um víða veröld og útgáfurnar eru yfir 500 talsins.

Skáldsagan Kristnihald undir Jökli kom fyrst út árið 1968 hjá Helgafelli. Hún gerist vestur undir Snæfellsjökli og geymir heillandi náttúrulýsingar þaðan. Hún er um göldrótt fólk og fulltrúa almættisins og meginstef Kiljans er að ekki sé allt sem sýnist. Sagan er fyndin, djúp, listræn og naskur tíðarandaspegill.

Til gamans má geta þess að orðið „hnallþóra“ (stór og mjög skreytt terta) skapaðist í Kristnihaldinu. Í kaflanum Hnallþóruþáttur og hulduhrúts segir þegar umboðsmaður biskups verður á miðnætti sem lamaður frammi fyrir yfirgengilega hrokuðu veisluborði, honum einum ætlað, þar sem meðal annars má finna þrjár gildar stríðstertur (urðu móðins í stríðinu). Konan sem stendur fyrir veitingunum býður umboðsmanninum ítrekað að gjöra svo vel og segist vera kölluð Hnallþóra í sveitinni.

---

... Séra Jón: ... Nema guð hefur þann kost að það má fá honum sæti hvar sem er; í hverju sem er.

Umbi: Til að mynda í nagla?

Séra Jón, orðrétt: Í skólakappræðum var stundum lögð fram sú spurníng hvort guði sé ekki ómáttugt að skapa svo þúngan stein að hann geti ekki tekið hann upp. Oft finst mér almættið vera einsog snjótitlíngur sem öll veður hafa snúist í gegn. Svona fugl er á þýngd við frímerki. Samt fýkur hann ekki þó hann standi útá berángri í fárviðri. Hafið þér nokkurntíma séð hauskúpu af snjótitlíngi? Hann beitir þessu veikbygða höfði mót veðrinu, með gogginn við jörð, leggur vængina fast uppað síðunum, en stélið vísar upp; og veðrið nær ekki taki á honum heldur klofnar. Jafnvel í verstu hrinunum bifast fuglinn ekki. Hann er staddur í logni. Það hreyfist ekki einusinni á honum fjöður.

Umbi: Hvernig vitið þér að fuglinn sé almættið en ekki vindurinn?

Séra Jón: Af því frostbylur er sterkasta afl á Íslandi en snjótitlíngur vesalastur af öllum hugdettum guðs. (bls. 112-113).

... Um snjótitlíng hef ég aungvu að bæta við það sem ég sagði um daginn við úngan mann sem var að leita að sannleikanum: ef til er almætti í himingeimnum, þá er það í snjótitlíngum. Hvað sem á dynur, snjótitlíngurinn lifir af; stórhríðarnar eru ekki fyr um götur geingnar en hann er orðinn sólskríkja. (bls. 230).

Stjörnuspá 16. maí - 30. maí
Líf og starf 16. maí 2024

Stjörnuspá 16. maí - 30. maí

Vatnsberinn hefur í mörgu að snúast þessa dagana en er þó frekar skýr í kollinum...

Safnað fyrir Einstök börn
Líf og starf 26. apríl 2024

Safnað fyrir Einstök börn

Stóðhestaveisla Eiðfaxa var haldin 13. apríl í HorseDay-höllinni á Ingólfshvoli ...

Umhverfisvænar blómaskreytingar
Líf og starf 25. apríl 2024

Umhverfisvænar blómaskreytingar

Náttúruleg fegurð var í fyrirrúmi á námskeiði um blómaskreytingar í Garðyrkjuskó...

Sumardagurinn fyrsti
Líf og starf 25. apríl 2024

Sumardagurinn fyrsti

Samkvæmt dagatalinu kemur sumarið 25. apríl. Bændablaðið leitaði því til lesenda...

Lóan
Líf og starf 23. apríl 2024

Lóan

Lóan er komin! Um þessar mundir eru heiðlóur að tínast til landsins en apríl er ...

Jöklapeysur úr íslenskum lopa
Líf og starf 23. apríl 2024

Jöklapeysur úr íslenskum lopa

Mjólkurfræðingurinn og frumkvöðullinn Pétur Pétursson setur nú á fót hönnunarsam...

Að höndla sér hross til reiðar
Líf og starf 22. apríl 2024

Að höndla sér hross til reiðar

Orðsins list kemur að þessu sinni úr Íslendingasögunum.

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands
Líf og starf 16. apríl 2024

Sigurður í Pylsumeistaranum er Kjötmeistari Íslands

Sigurður Haraldsson í Pylsumeistaranum var krýndur Kjötmeistari Íslands í fagkep...