Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Árni er líka vel tækjavæddur til snjómoksturs.
Árni er líka vel tækjavæddur til snjómoksturs.
Fréttir 7. janúar 2020

Lítið mál að skella inn varaafli ef eitthvað bjátar á

Höfundur: Hörður Kristjánsson
Árni Brynjólfsson og Erna Rún Thorlacius búa á Vöðlum í Önundarfirði með um 50 mjólkandi kýr. Óveðrið sem gekk yfir landið á dögunum olli þeim þó engum teljandi vandræðum.
 
Árni sagði að óveðrið hafi ekki verið að plaga þau neitt að ráði miðað við það sem heyrðist af vanda bænda á Norðurlandi. Hann segir að ekki hafi heldur borið á truflunum í afhendingu rafmagns frá Orkubúi Vestfjarða. 
 
Hrósar Orkubúinu fyrir fyrirhyggju
 
„Hjá Orkubúinu ákváðu þeir að ræsa tímanlega varaaflsstöðina í Bolungarvík til að hafa allt til reiðu ef bilanir yrðu á línum. Þeir eiga hrós skilið fyrir að sýna þá fyrirhyggju. Það datt því ekkert út rafmagnið hér hjá okkur þótt einhverjar truflanir hafi verið á Þingeyri og víðar í Dýrafirði.“
 
Vel sett með varaafl
 
Árni segist reyndar búa vel hvað varaafl varðar, bæði hvað varðar raforku fyrir mjaltaþjón og aðra starfsemi. Við bæinn er lítil vatnsaflsvirkjun sem búin er að þjóna bændum á Vöðlum síðan 1952. Hún hentar samt ekki til að knýja mjaltaþjón. 
 
„Hún dugar ekki nema fyrir gamla bæinn, en hann var aldrei tengdur við veitukerfið. Virkjunin dugði hins vegar ekki fyrir þau hús sem ég hef byggt og þau eru tengd við veiturafmagn frá Orkubúinu. Þá keypti ég nýja varaaflsstöð um leið og ég keypti róbótinn.“
 
Segir Árni að ekki hafi verið verjandi annað en að vera með öruggt varaafl á staðnum, enda hafi það nánast verið fastur liður í Önundarfirði og víðar á Vestfjörðum á hverjum einasta vetri á árum áður að rafmagnið dytti út. Jafnvel oft yfir veturinn. 
 
Árni Brynjólfsson, bóndi á Vöðlum, algallaður að sinna útiverkum. 
 
Mikilvægt að missa kýrnar ekki út úr rútínu
 
„Það vita það allir sem þekkja inn á kýr að ef menn missa þær niður í nyt vegna þess að ekki er hægt að mjólka, þá eru menn búnir að tapa tekjunum af þeim kúm þar til eftir næsta burð. Einhverjar kunna að jafna sig að hluta eftir slík áföll en obbinn af kúnum missir nyt. Það er allavega mín reynsla,“ segir Árni. 
„Það er búin að vera varaaflsstöð hér allan minn tíma í búskap. Reyndar var komin varaaflsstöð hér fyrir gamla fjósið áður en róbótinn kom. Þannig að ég á í raun tvær varadísilstöðvar.
 
Ég hef alltaf getað snúið lykli og sett í gang varaaflið ef rafmagnið hefur farið eitthvað úr skorðum í veitukerfinu. Svo er rofi við rafmagnstöfluna þar sem ég skipti á milli. Þannig hafa slíkar truflanir engin áhrif á okkur.“ 
 
Margt búið að gera til úrbóta í flutningskerfinu
 
„Þeir mega samt eiga það hjá Orkubúinu að það hefur verið margt gert til úrbóta á þeim 30 árum sem ég hef stunda hér búskap. Það er búið að leggja jarðstrengi á verstu köflunum þar sem línur voru gjarnar á að gefa sig og staurastæður að fara í snjóflóðum.“
 
 
Byggja nýtt haughús og aðstöðu fyrir nauta- og kvígauppeldi
 
Þau hjón hafa verið að byggja nýtt haughús við fjósið á Vöðlum. Ofan á því er hugmyndin að vera með uppeldisfjós fyrir naut og kvígur sem ekki hefur verið mögulegt að ala hingað til. Þannig munu þau hjón væntanlega styrkja tekjugrunn búsins. Árni segist að öðru leyti ekki ætla að bæta við sig mjólkurkúm nema það sem núverandi fjós býður upp á. 
 
Þau hjón eru líka vel sett hvað moksturstæki varðar þótt hressilega snjói. Er Árni með snjóblásara til taks sem mikið var nýttur fyrir Vegagerðina meðan hann stundaði þar verktöku á vetrum. 
 
Öll mjólkin frá Vöðlum fer nú beint til vinnslu hjá Örnu í Bolungarvík. Hefur sú mjólkurvinnsla mjög verið að sækja í sig veðrið og nýtir hún nú meiri mjólk en framleidd er á Vestfjörðum. Þar vonast menn líka til að við tilkomu Dýrarfjarðarganga opnist leið til að liðka fyrir flutningum og stytta leið með mjólk af Barðaströndinni.
Skráð heildartjón rúmur milljarður
Fréttir 21. nóvember 2024

Skráð heildartjón rúmur milljarður

Skráð heildartjón vegna kuldakasts og annars óvenjulegs veðurfars á árinu er rúm...

Fyrirhugaðar breytingar voru á sláturfyrirkomulagi og kjötvinnslu
Fréttir 21. nóvember 2024

Fyrirhugaðar breytingar voru á sláturfyrirkomulagi og kjötvinnslu

Áður en Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm boðaði Kaupfélag Skagfirðinga (KS) ...

Undanþágan dæmd ólögmæt
Fréttir 21. nóvember 2024

Undanþágan dæmd ólögmæt

Óvissa er uppi um framhald samruna og hugmynda Kaupfélags Skagfirðinga (KS) um h...

Pólar hestar fyrirtæki ársins
Fréttir 19. nóvember 2024

Pólar hestar fyrirtæki ársins

Markaðsstofa Norðurlands hefur valið hestaleiguna Pólar hestar sem fyrirtæki árs...

Byggja stóra íþróttamiðstöð
Fréttir 18. nóvember 2024

Byggja stóra íþróttamiðstöð

Í Árnesi er verið að byggja fyrstu íþróttamiðstöðina í Skeiða- og Gnúpverjahrepp...

Afstaða framboða til landbúnaðarmála
Fréttir 15. nóvember 2024

Afstaða framboða til landbúnaðarmála

Stjórnmálaflokkarnir sem eru í framboði til alþingiskosninga, sem fram fara 30. ...

Nýjar höfuðstöðvar
Fréttir 15. nóvember 2024

Nýjar höfuðstöðvar

Samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfis-, orku- og loftslagsráðher...

Fiðrildategund nefnd eftir Björk
Fréttir 15. nóvember 2024

Fiðrildategund nefnd eftir Björk

Skordýrafræðingurinn Harry Pavulaan hjá Nebraska-háskóla hefur nefnt nýja fiðril...