Hamborgari og svið besti maturinn
Kári er 13 ára og það klikkaðasta sem hann hefur lent í um ævina var þegar hann datt næstum ofan í skítakjallara.
Nafn: Kári Ingvarsson.
Aldur: 13 ára.
Stjörnumerki: Krabbi.
Búseta: Árnes 1.
Skóli: Finnbogastaðaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir, smíði og íslenska.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundarnir mínir og gæsin mín, hann Gassi, sem ég ungaði út í rúminu mínu.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari og svið.
Uppáhaldshljómsveit: Queen.
Uppáhaldskvikmynd: Ace ventura petdetective.
Fyrsta minning þín? Ætli það sé ekki þegar ég fór til Danmerkur með foreldrum mínum þegar ég var 3 ára.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Neibbs, en mér finnst mjög gaman í fótbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég ætla að verða bóndi hér.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Ég datt næstum ofan í skítakjallara þegar ég og pabbi vorum að taka upp gólfið en samfestingurinn hélt mér uppi því hann flæktist í netagrindinni.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Stærðfræðitímar!!
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Já, ég fékk frændsystkini mín í heimsókn í mánuð.