Haraldur Bollli
Haraldur Bolli er 12 ára Akureyringur sem fílar Kaleo. Hann man vel eftir því þegar hann lá sárlasinn á meðan mamma hans var að fæða Jónatan litla bróður. Þegar Haraldur Bolli verður stór ætlar hann að verða atvinnumaður í fótbolta, nú eða kokkur.
Nafn: Haraldur Bolli Heimisson.
Aldur: 12 ára.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Akureyri.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Myndmennt og stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Panda.
Uppáhaldsmatur: Humar og sushi.
Uppáhaldshljómsveit: Kaleo.
Uppáhaldskvikmynd: Stepbrothers og Godzilla.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var veikur með 40 stiga hita og mamma var að fæða Jónatan bróður minn en þá var ég sex ára.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi handbolta og fótbolta.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Atvinnumaður í fótbolta eða kokkur.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég var sex ára og keypti mér Þrista á leið í skólann. Ég borðaði heilan poka á leiðinni, kennarinn hringdi í mömmu og lét hana vita, ég var með súkkulaði út á kinn.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Taka úr uppþvottavélinni.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í sumar? Ég ætla á barnfóstrunámskeið hjá Rauða krossinum og á Íslandsmót og N1 mót í fótbolta.