Í Þórðarhelli með skemmtilegu fólki
Aníta er 8 ára gömul og á heima á Bæ í Árneshreppi. Fyrsta minning hennar er af því þegar hún nuggaði smjöri í hárið á sér og það klikkaðasta sem hún man eftir er þegar hún festist í skúffu.
Nafn: Aníta Mjöll Dalkvist Gunnarsdóttir.
Aldur: 8 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Bær á Ströndum.
Skóli: Finnbogastaðaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Enska.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hestur.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari.
Uppáhaldshljómsveit: One Direction.
Uppáhaldskvikmynd: Snar og Snöggur.
Fyrsta minning þín? Þegar ég nuggaði smjöri í hárið á mér.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Bæði.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Bóndi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Að festast í skúffu.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Að rífast við systur mína.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í sumar? Já, ég fór út í Þórðarhelli með fullt af skemmtilegu fólki.