Kýr og apar
Ólöf Helga býr á Grófargili við Varmahlíð í Skagafirði ásamt foreldrum sínum og tveimur systrum.
Nafn: Ólöf Helga Ólafsdóttir.
Aldur: 10 ára.
Stjörnumerki: Steingeit.
Búseta: Grófargil.
Skóli: Varmahlíðarskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Fótbolti, fimleikar, sund og útivist.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Kýr og apar.
Uppáhaldsmatur: Hamborgari og pasta.
Uppáhaldshljómsveit: Engin.
Uppáhaldskvikmynd: Tall girl.
Fyrsta minning þín? 4 ára afmælið mitt.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á hljóðfæri? Ég æfi fótbolta og fimleika en æfi ekki á hljóðfæri.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég ætla að verða arkitekt eða kennari.
Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Þegar ég fór í fallturn á Ítalíu.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt í sumar? Fara hringinn í kringum landið og hitta ættingja mína.
Næst » Ég skora næst á Gísla Frank Traustason á Syðri-Hofdölum að svara.